Fara í efni

SEKTAÐ FYRIR VÖRSLU

Sæll Ögmundur.
Ég hlustaði á ágætt viðtal við þig á útvarpi Sögu í gær. Að mörgu leyti var viðtalið gott og umræðan einnig. Hins vegar fannst mér þú gera lítið úr þörfinni á afglæpavæðingu fíkniefna því menn væru ekkert að lenda í vandræðum vegna vörslu. Langaði bara að leiðrétta það.
Á árunum 2011-2014 voru 3886 manns sektaðir fyrir vörslu á fíkniefnum. Sektunum fjölgaði mjög mikið á milli ára. Langaði bara að leiðrétta þennan miskilning hjá þér.
mbk
S.O.