Fara í efni

ÁHUGALEYSI UM FJÁRAUSTUR

Ég sé að innanríkisráðherra hefur upplýst þig í formlegu svari að starf Rögnu-nefndarinnar svokölluðu um framtíð Reykjavíkurflugvallar að reikningurinn sé kominn í 35 milljónir og enn sé starfinu ekki lokið því á skorti "formlegar veðurmælingar" á Skerjafirði. Hvernig stendur á því að fjölmiðlar sýna þessum gagnslasa fjáraustri engan áhuga?
Haffi

Sæll Haffi og takk fyrir bréfið. Ég kann því miður engin svör við spurningu þinni en þykir hún engu að síður góð. Ögmundur