AÐ HRUNI KOMINN Júlí 2015
Margir hafa þunga þanka
Það er alveg skýrt
Að Steinþór vilji byggja Banka
og það nokkuð dýrt
Nú er nauðgun lítið mál
niður glæpinn þöggum
því engin verða eftirmál
í vitorði með Löggum
Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
... nú er talað um að taka inn hóp af flóttamönnum og
nægur peningur virðist til að byggja bankahöll við höfnina. Á sama
tíma er LSH spítalinn að vega salt á brúninni, og er það ekki
heldur nýfrétt! Væri ekki nær að beina þessum takmörkuðu fjármunum
í að halda hjúkrunarfræðingum á spítalanum og stilla til friðar?
Jafnvel mætti eyða í kamra svo ferðamennirnir þurfi ekki að menga
umhverfið. Það eru margir kraftar að verki en virðast allir vilja
óstöðugleika heldur en stöðugleika og sátt samfélag ...
Gunnar
Lesa meira
Nú virðast björgunarsveitirnar okkar vera að gefa sig líka og
vilja fá að rukkka fyrir að bjarga fólki úr háska. Eflaust fara
margir óvarlega og eflaust má gera miklu meira til að upplýsa fólk
um hættur fyrir ferðamenn á ferðum þeirra um Ísland.
Rútubílstjórunum sem finnst afleitt að rukka rútur við
ferðmannastaði finnt þetta frábær hugmynd, sbr.
... Ég hef unnið á sjúkrahúsi og tekið á móti fólki úr
lífsháska og minnist ég þess hve þakklátt fólkið var
björgunarmönnum sínum og síðan fyrir aðhlynningu á sjúkrastofnun.
Ef bankað væri upp á með reikning myndi fólk almennt borga en
...
Sunna Sara
Lesa meira
Þar túristar um þessar mundir
Þurfa víst að létta á sér
Og kúka um allar koppagrundir
Í þjóðgarðinum okkar
hér.
Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Þarna var hann mættur í fréttatíma Stöðvar 2, hann Jón
Gunnarsson, formaður atvinnunefndar Alþingis, að sanna það sem þú
hefur haldið fram Ögmundur, að á við rök að styðjast. Ég hafði
varla trúað því en hann vill í alvöru að rukkað verði almennt við
náttúruperlur og að "eigendur" hvort sem þeir eru opinberir eða
einkaaðilar fái skotleyfi á okkur bæði til að rukka okkur og sekta.
Þannig að fyrirhuguð rukkun í þjóðgarðinum á Þingvöllum er
fyrirmynd af allsherjar gjaldvæðingu náttúrunnar. Nei takk segi
ég!
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Það er alveg hárrétt sem þú segir hér á heimasíðu þinni að
orkumála-umræðan á Alþingi í vor var ekki um virkjanir heldur
bara um formið, hvort ákvarðanirnar væru teknar á réttan hátt!
Hvort þær væru í samræmi við Rammaáætlun sem er búin til utan
þingsins! Maður vissi aldrei hvort eða hvar Píratar vildu virkja
eða Björt framtíð eða Samfylkingin. Þingmenn þessara flokka voru
aldrei spurðir en greiddu að vísu (með einni
undantekningu) atkvæði með Hvammsvirkjun sem er afstaða út af
fyrir sig. En þar hafði "fagfólk" Rammaáætlunar gefið grænt ljós.
En hvað með Urriðafoss, Skrokköldu og Hagavatn? Fyndist þingmönnum
þessara flokka í lagi að virkja þarna ef fagfólk segði þeim að það
væri í lagi ...
Nábúi Þjórsár
Lesa meira
... Ég er með tvær spurningar, ein um erlend mál. Mér finnst að
gríska málið hafi aldrei verið fyllilega útskýrt í grunninn, svipað
og á Íslandi er bankar í einkageiranum sekir um að hafa lánað
gáleysislega og eru svo að reyna að krækja í ríkisábyrgð eftir á.
Er það siðferðilega rétt? Eins og í tilfelli okkar er upphæðin líka
það stór að Grikkjum mun aldrei takast að ráða við lánin, þess
vegna er þetta líka spurning um raunsæi, það verður að gefa
lánþeganum tækifæri að ráða við lánið. Þá vaknar spurning hvort að
ESB sé orðið að handrukkara einkabanka eða kapítalsins en gefur út
á sama tíma að það sé lýðræðisleg stofnun!
Loks var ég með spurningu um gang mála heima ...
Gunnar
Lesa meira
Ég er fegin að sjá þessa umræðu um Rammaáætlun hér á síðunni og
í Fréttablaðinu nýlega þar sem vísað er í skrif Hjörleifs
Guttormssonar um forsendur sem þurfa að vera til staðar til að
Rammaáætlun yfirleitt gangi upp.
Það verður að setjast yfir það hvers vegna við erum yfirleitt
að auka raforkuframleiðsluna og í þágu hverra. Áður en það er gert
er galið að fórna hverri nátúruperlunni á fætur annarri bara af því
að Rammaáætlun segir að það sé í lagi. Þetta er hárrétt hjá
Hjörleifi. Ég skynjaði það mjög strekt í umræðunni á
Alþingi í vor að flestir þingmanna voru fyrst og fremst
að tala um form en ekki innihlald einsog þú segir
Ögmundur. Þetta var mjög áberandi hjá
Samfylkingu, Pírötum og Bjartri framtíð að undanskyldum
...
Sunna Sara
Lesa meira
... Ég hef ekki séð neitt nýtt um heilbrigðisstéttirnar í
bili.Vinna Rögnunefndar tengist heilbrigðismálum. Hver var
ávinningur af vinnu Rögnunefndar, er hægt að fullyrða eitthvað um
það? Þetta hefur væntanlega verið kostnaðarnytjagreining um
vænlegan kost fyrir flugvallarstæði, en fæstir virðast ánægðir með
niðurstöðuna.
Stefán Einarsson
Lesa meira
Það er hárrétt ábending hjá þér í Fréttablaðsgrein þinni að
Rammaáætlun er engin heilög ritning. Spurningin er hve mikið á að
framleiða af orku og til hvers. Fyrr en þessu er svarað er
Rammaáætlun bara eins og "kjörbúð" fyrir stóriðjuna einsog
Hjörleifur Guttormsson hefur orðað það svo ágætlega.
Jóel A.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Verkalýðsdegi að vanda hér fögnum
en samstöðuna nú almennt mögnum
sjáum erfiða tíma
við verðlag glíma
og kaupmáttarskerðingum höfnum.
Spillingin leikur enn lausum hala
líka hjá stjórnarliðinu
Þeir eignir okkar undir sig mala
og eru með í spilinu.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Hér vandræða tíma og mikla vá
vonbráðar fáum að horfa upp á
stjórnin þá fallin
og Bjarni kallinn
og langflestir vilja kosningar fá.
Já ef ég ætti banka bréf
bráðlega yrði ríkur
Engin fátækt ekkert þref
eymdinni allri líkur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef vantar fé í villta neyslu,
velgjörðirnar munum.
Bananasýslan bauð í veislu,
bankaræningjunum.
Gráðugir sýnast sumir menn,
sækja pund og franka.
Mafíustarfsemi magnast enn,
margir rændu banka.
...
Kári
Lesa meira
Ég er hjartanlega sammála þér um Íslandsbankamálið. Menn láta sem hneykslið sé hverjir keyptu. Auðvitað kaupa þau sem eiga pening og vilja enn meiri pening, liggur það ekki í augum uppi? Jú, það gerir það þegar á það er bent. Og það var gert og varð þá mikið fár. Þess vegna var salan “misheppnuð”. En hneyklsið var ekki þetta, heldur ...
Sunna Sara
Lesa meira
Ég var ánægð að sjá afdráttarlausa afstöðu oddvita Sósíalistaflokksins, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, til spilakassa í borginni: Hún vill þá burt. Nú bíðum við eftir öðrum flokkum. Ég hef ekki kosið Sósíalistaflokkinn til þessa en það gæti breyst. Nú bíð ég eftir afstöðu annarra flokka.
Ein sem þekkir spilavandann úr sinni fjölskyldu
Lesa meira
Sigurður Ingi formaður Framsóknarflokksins og ráðherra virðist vera sloppinn fyrir horn eftir rasísk ummæli sín. Þökk sé Íslandsbankahneykslinu. Og Boris Johnson forsætisráðherra Breta sem var við það að missa embætti sitt eftir að hafa logið að þingi og þjóð um samkvæmi þvert á kovídreglur í embættisbústað ráðherrans virðist líka sloppinn. Nú fundar hann í Úkraínu og um Úkraínu og tvídar í Rússlandi um hve góður kall hann sé. Þannig er hann ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Hér veröld ríkra virða má
víst er ágætt djobbið
En upp fyrir enni nefin ná
og ekki vantar snobbið.
Allir virðast vera með skrekk
viðvörunar bjöllur klingja
Að selja bankana trekk í trek
til útvaldra uppvakninga.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allt Frá lesendum