AF HVERJU VORU PÍRATAR, SAMFYLKING OG BF EKKI SPURÐ?
Það er alveg hárrétt sem þú segir hér á heimasíðu þinni að
orkumála-umræðan á Alþingi í vor var ekki um virkjanir heldur
bara um formið, hvort ákvarðanirnar væru teknar á réttan hátt!
Hvort þær væru í samræmi við Rammaáætlun sem er búin til utan
þingsins!
Maður vissi aldrei hvort eða hvar Píratar vildu virkja eða Björt
framtíð eða Samfylkingin. Þingmenn þessara flokka voru aldrei
spurðir en greiddu að vísu (með einni undantekningu) atkvæði
með Hvammsvirkjun sem er afstaða út af fyrir sig. En þar hafði
"fagfólk" Rammaáætlunar gefið grænt ljós. En hvað með Urriðafoss,
Skrokköldu og Hagavatn? Fyndist þingmönnum þessara flokka í lagi að
virkja þarna ef fagfólk segði þeim að það væri í lagi einsog í
tilviki Hvammsvirkjunar?
Virkjun á orku er ekki bara fagleg ákvörðun heldur líka pólitísk
ákvörðun þar sem þarf að spyrja til hvers eigi að virkja og hvar
eigi að virkja.
Fjölmiðlar horfðu á þingið hjakka í þessu fari í allt vor án þess
að spyrja þingmennina hvort og þá hvar þeir vildu virkja. Er það
ekkert undarlegt?
Nábúi Þjórsár