VILL FLUGVÖLLINN ÚR VATNSMÝRINNI
Það eru tvær mikilvægar ástæður til að leggja flugvöllinn í
Vatnsmýri niður:
1. Hagkvæmnisástæður. Vatnsmýrin er afar verðmætt land til
uppbyggingar miðbæjarins og þéttingu byggðar.
2. Öryggisástæður. Það er varhugavert að staðsetja flugvöll í miðbæ
stórborga. Við Reykjavíkurflugvöll hafa orðið alvarleg slys,
flugvélar hafa hrapað í aðflugi, slys hafa átt sér stað í flugtaki
og flogið hefur verið á hús í nágrenni við flugvöllinn. Flugtaks-
og lendingarlínur eru þannig að þær liggja yfir þéttbýlustu svæði
Reykjavíkur og Kópavogs og ekki má gleyma að flugvélarnar nánast
lenda á þaki Alþingis og Ráðhússins í Reykjavík.
Hvort heldur að byggður verði nýr flugvöllur í nágrenni Reykjavíkur
eða innanlandsflugið flutt til Keflavíkur, þá er hvor kosturinn
fyrir sig betri en að viðhalda Reykjavíkurflugvelli. Bæta má
samgöngur við Keflavíkurflugvöll og stytta þannig ferðatímann til
og frá Reykjavík. Það er alveg ljóst að núverandi stjórnvöld eru
ekki til í að leysa þessi mál enda stendur hugur þeirra fyrst og
fremst til landsbyggðarinnar, þar sem hvert atkvæði vegur þyngra en
hjá, að þessu leyti, mannréttindaskertum höfuðborgarbúum.
Innanlandsfarþegar á landsbyggðinni virðast nokk sama um hagsmuni
og öryggi borgarbúa og neita að ræða aðra kosti en áframhaldandi
staðsetningu flugvallarins i Vatnsmýrinni.
Þess vegna má vel hugsa sér að Reykjavík, ein og sér eða með
nágrannasveitarfélögunum, byggi flugvöll í næsta nágrenni við
höfuðborgarsvæðið. Það yrði góð fjárfesting enda stæðu
sveitarfélögin undir rekstri hans og hirtu arð af.
Pétur Kristjánsson