SKÝR AFSTAÐA
Sæll Ögmundur. Hver er afstaða þín til lagningu sæstrengs til
Bretlands? Ég er mikið á móti þessum hugmyndum og tel þær glapræði
...
Stefán Einarsson
Sæll Ögmundur. Hver er afstaða þín til lagningu sæstrengs til
Bretlands? Ég er mikið á móti þessum hugmyndum og tel þær glapræði
...
Stefán Einarsson
Ég er sammála skrifum þínum um árásir Vilhjálms Bjarnasonar,
alþingismanns og Þorbjörns þórðarsonar, fréttamanns á
íslenska bændur. Þeir félagar reyna að gera lítið úr þeim og
íslenskum landbúnaði. Þú segir skrif þeirra vera yfirlætisfull. Það
er rétt en engu að síður óþarfa kurteisi um meiðandi
skrif þeirra. Mér finnst þau fyrst og fremst vera fordómafull
og heimskuleg. Þeir félagar ...
Jóel A.
Dólgafrjálshyggju nú dragast þeir í
sem dæmist að sjálfsögðu fyrir bí
þeir Villi og Tobbi
í upphefðarsnobbi
ættu að taka sér frjálshyggju frí.
Pétur Hraunfjörð
Hvers vegna var ekki sett viðskiptabann á Ísrael eftir morðin og
mannréttindabrotin í Gaza og ofbeldið almennt gagnvart
Palestínumönnum? Hvers vegna hættum við ekki viðskiptum við
Bandaríkin til að mótmæla pyntingabúðunum í Guantanamo? Hvers vegna
tökum við þátt í refsiaðgerðum gegn Rússum? Svarið við öllum
spurnigunum er hið sama. Það er vegna þess að Ísland hefur verið
gert að "litla hvutta" í alþjóðlegum samskiptum. Það er
hárrétt sem þú bendir á hér á síðunni að íslensk stjórnvöld
eiga að hætta að vera litli hvutti NATÓ og núna líka litli hvutti
ESB!
Jóhannes Gr. Jónsson
Thorsil byrjaði að kanna byggingarstað við Þorlákshöfn, í næsta
sveitarfélagi við Árborg þar sem Eyþór Arnalds var oddviti
sjálfstæðismanna. Ein af ástæðunum fyrir því að Thorsil hætti við
að reyna að reisa verksmiðjuna á því svæði var skortur á nægjanlega
miklu rafmagni sem fyrirtækið þurfti í framleiðslu sína. Ofanskráð
er úr grein í Stundinni : "Svona eignast maður virkjanakost :
Keyptu af Orkuveitunni fyrir 34 milljónir." Hlýtur þetta ekki að
vera mjög sérkennileg skýring að vegna þess að "næga orku" var ekki
að finna í Þorlákshöfn, þá hafi verkefnið verið flutt enn lengra
frá dreifikerfi aðal söluaðilans LSV, út á Reykjanestá!? Hvar er
orku þar að hafa? Stóð til að semja við HS orku á ...
Sveinn Aðalasteinsson
Litla Kópnum lóguðu þá
sem lífinu vildi bjarga
Lágfótu létu svo hræið fá
og ýmsa aðra varga.
Pétur Hraunfjörð
Hefjum verkföll hækkum laun
hagnaðararði má skipta
Því fátæktin er félagsleg raun
Upp grettistaki nú lyfta!
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Nú birtir upp þá batna sár
bága heilsan skánar
Með vordögum verðum klár
er sólin skín og hlánar.
Af Kristrúnu gæti Katrín lært
því komin er á toppinn
Enn íhaldið virðist Kötu kært
lærði að sitja koppinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Í ellinni er upphefð góð
hjá elítunnar kálfum
Fálkaorðuna fær þá stóð
úthlutað sér sjálfum.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Leiðtogahjörðin á liðinni stund
lyftist á tá hver einasta Hrund
þær sér útvöldu
sitt ágæti töldu
og heimsyfirráð vildu eftir fund.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Skýrsluna hefði mátt skrifa betur
til nánari skoðunar landinn hvetur
þeir vinahóp töldu
og ættmenni völdu
í eftir á meðferð sjáum hvað setur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
... Nú hafnar eldflaug í Póllandi. Bandarísk yfirvöld eru að rannsaka hvort ekki sé öruggt að Rússar hafi skotið henni. Líklegt? Spyr sá sem ekki veit en grunar margt.
Við erum í hættulegu kompaníi með stærstu auðhringum heims, þar á meðal hergagnaframleiðendum og handbendum þeirra. Ísland úr NATÓ HERINN BURT.
Jóhannes Gr. Jónsson
Þrungin spenna þarna en
Þeir vilja báðir valdið
Gulli Þórðar og Bjarni Ben
berjast nú um íhaldið.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Á landsfundi verður líf og fjör
líka barist um valdið
því Gulli Þórðar vill verða sör
og reisa við íhaldið.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Gulli sækir að Bjarna Ben
með baráttu og læti
Segist með sérstakt gen
sem forystuna bæti.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Vanhæfni sína víst má dylja
vaxtaokrið leiðir hann
Ómenntaðir menn þó skilja
að minna en lítið kann.
Hann öfugmæla vísur virðir
um verkalýðsins auma hag
Fyrir velferðina víst nú girðir
Því vaxtaokur er hans fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Með glórulausari gerningum forsætisráðuneytisins er mál nr. 2/2023. Það er tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn „hatursorðræðu.“ Áætlunin, í sautján liðum, var birt í „samráðsgátt“ þann 4. janúar síðastliðinn. Næsta mál gæti heitið „Varnir gegn illsku heimsins“, eða „Aðgerðaráætlun gegn ranglæti heimsins.“ Í tillögunni gegn „hatrinu“ er þó viðurkennt að ...
Lesa meira„Nú vinnum við ætlunarverk NATO“, segir varnarmálaráðherra Úkraínu, Oleksiy Reznikov. Í viðtali í úkraínsku sjónvarpi 5. janúar sl. talaði hann um hvernig hernaður Úkraínuhers fellur að verkefnum NATO. Nánar sagði Reznikov: „Þeir skilja þetta alveg núna. Við sögðum þeim það áður og þeir brostu. En núna segja kollegar mínir, varnarmálaráðherrarnir, skýrt í ræðum sínum ...
Lesa meiraKaup Elon Musk á Twitter voru frágengin í október. Þau fóru fram af hans hálfu undir merkjum tjáningarefrelsis og „afnáms ritskoðunar“. Í íslenskum fjölmiðlum var okkur sagt að eigendaskiptin boðuðu að öllum líkindum stóraukna „hatursorðræðu“. Í desember sl. gerðist það svo að af hálfu nýrra eigenda var gefin, í nokkrum skömmtum, innsýn í innri tölvuskrár Twitter, og þar birtist mikið „ritskoðunarveldi“. Um það heyrum hins vegar lítið í fjölmiðlum ...
Lesa meiraÞað er útbreidd skoðun í þjóðfélaginu að fullveldi sé gamaldags. „Deilihagkerfið“ gengur út á samnýtingu hlutanna. Þar eru fá ef nokkur takmörk. Fólk telur að hægt sé að „deila fullveldi“ ríkja [sem er ekki hægt], það deilir bílum, tækjum, leigir fötin sem það stendur í, leigir hús og íbúðir (Airbnb) og fleira í þeim dúr. Fólk deilir jafnvel mökum og sambýlisfólki. Þessi þróun er ekki að öllu leyti neikvæð ...
Lesa meiraÚtbreidd trú er það að Evrópusambandið [ESB/Sambandið] sé sérstakt friðarbandalag og afar lýðræðislegt fyrirbæri. Hvorugt á við rök að styðjast. Enda þótt friður í Evrópu hafi upphaflega legið til grundvallar forvera Evrópusambandsins, þ.e. Kola-og stálbandalaginu, eftir síðari heimsstyrjöld, er fátt sem bendir til þess í dag að sambandið sé sérstakt friðarbandalag, í raun fjarri því ...
Lesa meiraÞví miður verður ekki sagt um frumvarp um vefverslun (netverslun) með áfengi sem fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu fram í fyrra að því hafi ekki fylgt nein hætta á aukinni neyslu. Sama gildir að öllum líkindum um frumvarp dómsmálaráðherra um sama efni sem væntanlegt var ...
Lesa meira