Fara í efni

RÆNINGJAR AFTUR Á FERÐ OG FLUGI

Allt virðist stefna í gamalkunnan farveg. Stjórnendur og stjórnarmenn bankanna  heimta kaupauka í tengslum  við nauðasamninga og sölu bankanna og nema kröfur þeirra milljörðum! Flestum virðist finnast þetta fullkomlega eðlilegt. Einhvern tímann hefði þetta verið kallað bankarán! Því miður sé ég ekki annað en við stefnum hraðbyri inn í nýtt græðgistímabil og gott ef þotuliðið er ekki aftur mætt á Reykjavíkurflgvöll. Það fer um mann hrollur að sjá ræningjana  á ferð og flugi allt umkring.
Jóel A.