Fara í efni

UM FRELSI OG DÓP

Ég hlustaði á umræðuna um ÁTVR á Alþingi á fimmtudag. Ég tek undir með Joel A. í lesendabréfi hér á síðunni, að það kom á óvart hvernig Píratar stilla dæminu upp fyrst og fremst út frá verslunarfresli og þar með verlsunarhagsmunum! Svo finnst mér að eigi að sýna Heiðu Helgadóttur frá Bjartri framtíð þá virðingu að ræða hugmynd hennar um að Ríkið fari að selja dóp náist ekki að leggja ÁTVR niður!
Sunna Sara