AÐ HRUNI KOMINN Október 2015
... Kannski taka fjölmiðlar ekki sjálfa sig heldur alvarlega. En
hafa þeir ekki einhverjar skyldur við hlustendur og lesendur að
segja okkur þegar kjörnir fulltrúar Á Alþingi leggja til að ÁTVR
hefji sölu á eitulyfjum ef ekki nær fram að ganga frumvarp sem
bannar ríkinu að koma nálægt áfengissölu og að salan verði alfarið
færð inn í matvöruverslanir?
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Umræðan um frumvarp sem bannar ríkinu að annast áfengissölu er
stórmerkileg. Ekki vegna þess að mörgum nýjum fróðleikskornum
hafi verið sáð í jörð í þessari umræðu heldur vegna hins að hún
varpar ljósi á póltíska afstöðu til dæmis Pírata og þingmanna í
Bjartri framtíð. Þau töluðu máli frjálshyggju af meiri
tilfinningaþunga en ég hafði búist við. Allt til þess að færa stóru
verslunarkeðjunum einokun ... Ég er forviða á því að þetta fólk sem
gefur sig út fyrir að verja almannahag skuli blása á
lýðheilsusjónarmið eins og Helgi Hrafn,"kapteinn" Pírata gerði
í umræðunni ...
Jóel A.
Lesa meira
Hótel byggja í brautarstefnu,
borgarstjórnin dæmalaus.
Viskan þvert á vindastefnu,
vísindin þar standa á haus.
Kári
Lesa meira
... Atorka var eftir fjandsamlega yfirtöku á Jarðborunum á
mikillri fart í aðdraganda hrunsins. Haustið 2008 tók stjórnin, með
núverandi umsækjanda að dómarastarfi við Hæstarétt þá ákvörðun, að
afhenda skuldheimtumönnum fyrirtækið án þess að hluthafar áttu þess
nokkurn kost að bregðast við. Við það gátu fyrrum hluthafar ekkert
svar, ekki var unnt að krefjast opinberrar rannsóknar vegna
þessarar ákvörðunar. Nú er mjög áleitin spurning: Verði viðkomandi
fyrrum stjórnarmaður Atorku skipaður dómari við Hæstarétt má reikna
með að hann geti litið óhallt á málefni sem tengist fjármálaumræðu
af hverju tagi, t.d. spillingu, fjársvikum, undanskoti eigna og
öðru sem fjárglæfrum kann að tengjast? Eg leyfi mér að ...
Guðjón Jensson
Lesa meira
.. Það var gleðistund þegar Kaninn fór 2006 þá flaggaði eg her á
Brunnastöðum,og vinur minn Stefán Árnasson sem á hús hér hann kemur
úr Svarvaðardal, þvilik gleði. Ísland var lokst frjálst lýðveldi.
1944 var hér her og alla tið. Nú koma þær döpru fréttir að
kaupfelags leppurin sé búinn að fara til USA og biðja Kanann að
koma aftur með Posedon njósnavélar og vera hér og fólk er stuðað.
Eigum við fædd 1948 að lifa það að þessir menn komi hér aftur
kvilik skömm og hneisa,flóttamanna vandin og altt það er að stórum
hluta USA að kenna/írak og brölt þeira i olijuleit ...
Virgill Scheving Einarsson
Lesa meira
Á fátæktinni fékk að kenna
og faðirinn snortin sari
Þá alvaran fór upp að renna
úr varð Gunnar Smári.
Þá sósíalisminn í sálina rann
er samhjálp kynntist drengur
Við kapítalisma ei kunni hann
enda kallaður alþýðu fengur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Engar vangaveltur voru um málið og þá hvort ekki hefði verið rétt að leyfa fólkinu að fara til síns heima eins og við hin gerum ef við smitumst af veirunni! Er það þá líka forréttindafrekja? Ferðamennirnir sem hingað komu vitandi um sóttkvíarskylduna færu síðan á hótel og greiddu þar að sjálfsögðu fyrir sig. Í fréttatíma Sjónvarps var ekki boðið upp á slíka málefnalega umfjöllun.
Fréttastofa sem setur málin svona fram í viðkvæmu deilumáli veldur ekki hlutverki sínu um að vera upplýsandi og málefnalegur miðill heldur kemur fram eins og dómgreindarlaus áróðursvél fyrir sjónarmið valdhafa.
Í þessum viðkæmu málum er beinlínis óábyrgt að ...
Sunna Sara
Lesa meira
Það var illa til fundið af Kára Stefánssyni í Kastljósi Sjónvarpsins að sveija á Brynjar Níelsson, alþingismann, og uppnefna hann fyrir að hafa vogað sér að fara til útlanda. Ef Brynjar Níelsson hlítir sóttvarnareglum á hann ekki að þurfa að sitja undir svívirðingum, hvorki af hálfu Kára Stefánssonar né annarra. Hvert stefnir þetta þjóðfélag okkar?
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Brynjar Trump brögðin kann
fátt bítur á guttann
Á sólarströnd nú situr hann
og sendir okkur puttann.
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Að standa í þessu er stöðugt puð,
styðjum við Frakka og Belga.
Við trúum á okkar evrópska guð,
inngöngu í sambandið helga.
Að sitja á þingi og sulla með leir,
sannleikann móta ég hálfan.
Þruglið úr höfðinu þoli ekki meir,
þess vegna kæri mig sjálfan.
Evrópu selja áfram völd,
engar leiðir góðar.
Braska þau á bakvið tjöld,
beygja stoðir þjóðar.
...
Kári
Lesa meira
Hælið fyrir ríka öskurapa: Öskur og hvæs taugatrekktra og ríkra í hátalarakerfi, gegn óþolandi kyrrð öræfa landsins og gegn kyrrlæti valdra náttúrudásemda, varð stofn að ríkiskynningu til erl.ferðamanna nýlega.”Þeir ríku gráta mest” er sagt, þeir búa oftast við sálarkvalir. Slíkt mannval er einmitt æskilegast gesta til landsins, peningar þeirra í boði. “ Komið og öskrið á kyrrðina” (gegn greiðslu), er því tilboð íslenskra stjórnvalda til ríkisfólks heimsins, þess sem oftast grætur í hjarta sér þótt úr gulli sé gert. Þekkingu á bágu sálarlífi auðmanna er vel til að dreifa á Íslandi, hana má fénýta alþjóðlega. “ Komið til Islands, grátið, gólið, hvæsið, öskrið að vild” og græjurnar eru til reiðu. Vonin er ...
Grímur
Lesa meira
Nú fer páska helgin í hönd
hér margir láta sig dreyma
Vandamál sjáum víða um lönd
verum öll dugleg heima.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Ég er sammála þér varðandi skynsemina, hún hlýtur að þurfa að fá að vera með. Ferðamálaráðherrann sem fór í partí með vinkonum sínum í miðju kófinu lætur nú loka annað fólk inni í hótelfangelsi og ríkisstjórn sem lætur milljarða í að auglýsa að fólk eigi að drífa sig til Íslands, lokar svo gestina inni í fangabúðum sem skattgreiðendur þurfa að borga fyrir. Eru engin takmörk? Var verið að tala um skynsemi eða kannski skort á henni? Auðvitað átti ekkert að auglýsa að fólk ætti að koma við þessar aðstæður! Og þarf ekki að ræða við ferðafyrirtækin sem auglýsa helgarferðir til að sjá eldgos? Hvernig væri að slá í einn fund í þjóðaröryggisráðinu þar sem þau sem í því sitja gætu tekið púls hvert á öðru? Það er orðið eitthvert skammhlaup í heilabúunum sýnist mér.
Sunna Sara
Lesa meira
Stjórnvöldin undir stórútgerð hlaða,
stórlega margt er fúið.
Fjárglæframenn valda feikna skaða,
færist á þjóðarbúið.
...
Kári
Lesa meira
Nú vorið nálgast bjart og hlýtt
Nú kemst ég brátt á sjóinn
Nú verður hér fleyi úr fjöru ýtt
Nú farinn er allur snjórinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Allt Frá lesendum