SJÁLFSTÆÐIS-FLOKKUR EINKAVÆÐIR ÞVERT Á ALMANNA-VILJA!
Hvernig stendur á því að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki þurrkaður
út? Skoðanakannanir sýna að fólk vill ekki sjá einkavædda
heilbrigðisþjónustu en samt heldur flokkurinn þessari stefnu til
sttreitu og fer sínu fram og einakvæðir. Engu að síður heldur
sama fólkið og gagnrýnir þessa stefnu áfram að kjósa flokkinn eða
alla vega styðja hann í skoðanakönnunum. Hvort á að reiðast
Sjálfstæðisflokknum eða stuðningsmönnum hans? Á þetta
virkilega að þurfa að ganga svona?
Sunna Sara