AÐ HRUNI KOMINN Apríl 2016
Sæll Ögmundur
Mig langar til að þakka þér fyrir mjög skelegga og vel flutta ræðu
þína sem þú fluttir blaðalaust af mjög miklum krafti og
sannfæringu! Sjálfur sit eg heima, treysti mér ekki í fjölmenn
mótmæli á Austurvelli eftir erfiðan uppskurð vegna krabbameins
fyrir nokkrum vikum. En mitt fólk er núna á Austurvelli að
mótmæla!
Bestu baráttukveðjur!
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ
Lesa meira
... Bjarni Ben keypti hlut í félagi sem keypti íbúðir í Dubai
árið 2006. Hann segist hafa sett 40 milljónir króna í verkefnið
árið 2006, og í apríl það ár var gengi dollara 72 krónur. Þannig að
um 555 þúsund dollara er að ræða. Bjarni leggur OFURÁHERSLU á að
hann hafi selt íbúðirnar með TAPI, og notar það sem réttlætingu
fyrir gjörðum sínum. Í apríl 2009 þegar hann seldi sinn hlut í
félaginu var gengi dollars 126 krónur. 555 þúsund dollarar eru þá
70 milljónir króna eða 75% hærri upphæð í krónum talið, en
upphaflega var sett í viðskiptin. Nú er spurning hversu marga
dollara seldi Bjarni Ben hlut sinn á árið 2009. Tap í dollurum er
ekki tap í ...
Sveinn Elías Hansson
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum