AÐ HRUNI KOMINN Júlí 2016
Að vera án sjálfsins er að vera sannur og það er sem nóboddíinn.
Sá sem sækist ekki eftir einhverju er frjáls. Það sem þú sækist
eftir bindur vit þitt, heltekur vit þitt og gerir þig að þræli þess
sem þú sækist eftir. Að vera nóboddíinn er að hafa ekkert að óttast
því ekkert getur hann misst því hann ásælist ekki völd og væntir
einskis sem getur bundið og heft vit hans af hégómlegum hvötum.
Megir þú nú Ögmundur minn ...
Nóboddinn
Lesa meira
...Ert þú enn að berja höfðinu við steininn varðandi icesave? Ég
held að þú þurfir að skoða niðurstöðuna betur og láta af
þrjóskunni. Staðreyndin er sú að frumhlaup þitt í tíð ríkisstjórnar
Jóhönnu Sigurðardóttur leiddi yfir þjóðina einhverja ósvífnustu
ríkisstjórn sem hér hefur setið. það er oftar en ekki betri kostur
að standa fast með sínum þó ekki náist ítrustu óskir manns, heldur
en að opna stjórnkerfið fyrir ruslaralýð eins og þú náðir að gera,
illu heilli þegar þú ...
Kristjón Sigurðsson 300645 4969
Lesa meira
...Var að hlusta á þig á Bylgjunni í morgun varðandi
einkarekstur heilsugæslu. Er svo hjartanlega sammála þér að þetta
væri ófremdarfyrirkomulag. Ég las einhversstaðar þessi rök sem mér
finnast mjög góð þessum málstað. Í einkarekinni heilsugæslu er
markmið hámörkun hagnaðar og viðleitni við að auka tekjur sem mest
og skera niður kostnað. Þegar skjólstæðingur leitar til læknis þá
mælir læknirinn með meðferðum, skurðaðgerðum og lyfjagjöfum.
Skjólstæðingurinn er ekki í góðri aðstöðu að rökræða við lækninn og
yfirleitt fylgja menn ráðleggingum lækna og gera það sem fyrir er
lagt. Þarna eru tveir aðilar að semja um kostnað sem að þriðji
aðili (ríkið) þarf að borga fyrir án þess að ...
Bragi Baldursson
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Allt Frá lesendum