AÐ HRUNI KOMINN Ágúst 2016
Ég hef í forundran fylgst með umærðunni í kjölfar ummæla
þinna á þá lund að stundum sé reynt að nota kynferði sjálfum sér
til framdráttar og þá ekki síst til að skjóta sér undan því
að axla ábyrgð í erfiðum málum. Þetta er alveg hárrétt. Og það
segi ég sem kvenréttindakona! Þetta hefur ekkert með það að gera að
hlutur kvenna í þjóðfélaginu er almennt annar og erfiðari en hlutur
karla og að þetta þurfi að leiðrétta eins og þú sagðir í
þættinum!!! Hvaða asnaskapur er í fólki að reyna að ...
Ingibjörg
Lesa meira
Ég er sammála því að binda leyfilegan launamun í 1 á móti 3. Ég
er sammála þér að auðvitað er þetta hægt ef vilji er til þess. En
þá þarf að sýna þann vilja í verki. Heldurðu að
forystufólk launafólks sé tilbúið ákveða að eigin laun fari ekki
yfir átta hundruð þúsund þar sem því tókst ekki að hækka
lægstu félagsmenn sína í meira en 260 þúsund? Ef við sjáum
einhverja samkvæmni þarna skal ég trúa að módelið gangi
upp.
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Eftir að hafa kynnt mér vaxtabótamálin, og skerðingarnar sen þar
koma nú um stundir vegna hækkunar fasteignamats (sem er bara tala á
blaði) þá hefði verið rökréttast að kenna framsóknaríhaldinu um
allt þetta. Þegar vel er að gáð kemur ýmislegt í ljós, sem skýrir
þögn Vinstri grænna og Samfylkingar í þessu máli. Árið 2010 gerði
vinstri stjórnin breytingar á kerfinu, hækkaði hámark til
útreiknings bóta og hækkaði einnig fjárhæð vaxtabótanna. Einnig
komu til SÉRSTAKAR vaxtabætur. Skerðing vegna tekna fór úr 6% í 8%,
og átti þetta að koma þeim lægst launuðu best, sem það gerði í
ákveðinn tíma. Ásamt þessu LÆKKAÐI stjórnin skerðingarmörk eigna úr
...
Sveinn Elías Hansson
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Allt Frá lesendum