EN FINNA MENN SANNLEIKANN MEÐ RANNSÓKNAR-AÐFERÐUM HRUNVERJA?
Sæll Ögmundur
Mér finnst ekki gott að þú skulir vera að hætta á þingi en ég vil
treysta því að þú sem formaður eftirlits- og stjórnskipunarnefndar
Alþingis munir ekki láta deigan síga á lokametrunum heldur sinna
starfi þínu af kostgæfni og sjá til þess að skipuð verði fagleg og
óháð nefnd til að skrifa rannsóknarskýrslu um einkavæðingu
bankanna, hina síðari. Vona að þú hafir lesið afbragðsgóðan pistil
Marinós Njálssonar um málið og hafir þar margt til hliðsjónar, en í
pistlinum staðfestir hann í megindráttum það sem í
Vigdísarskýrslunni stendur skrifað. Margsinnis hefur þú sýnt það
Ögmundur að þú ert maður til að sjá hið augljósa og akta samkv.mt
því. Hið augljósa er að einkavæðingu bankanna, hina síðari sem og
þá fyrri, varðar beinlínis þjóðarhag og virðingu Alþingis, að hið
sanna megi koma fram, hversu dapurt sem það verður allsherjar-föður
"Vinstri"grænna. Eða er hann svo alltumlykjandi að þú munir kikna á
lokametrunum Ögmundur og afneita sannleikanum og hlusta á hanann
gala þér?
Nóboddíinn
Sæll,
Samkvæmt núverandi áætlun stjórnar Alþingis á að slíta þingi á
fimmtudag. Ef til vill er ekkert að marka það fremur en
ýmislegt annað.
Ekki glemya því að vandinn við hrunið - á meðal margs annars - var
hraðinn. Allt átti að klárast strax. Öll mál og allar athuganir,
sem fyrir bragðið urðu í skötulíki. Þetta eru vinnubrögð sem
Stjórnskipunar- og eftirlitsnenfnd Alþingis hlýtur að hafna, ekki
bara í orði, heldur verki. Hvað mig áhrærir þá læt ég engin
áfrýjunarorð hnika mér hvað þennan ásetning um vönduð vinnubrögð
varðar.
Hvað mína afstöðu snertir þá tel ég að rannsaka eigi allt
sem rannsóknar er krafist um af mikulm þunga í samfélaginu, að
ekki sé minnst á stórmál sem snerta líf og kjör fólks. Annað er
beinlínis skaðlegt yrir samfélagið. Staðhæfingar og dylgjur,
ef því er að skipta, eru eyðileggjandi fyrir lýðræðið.
Síðan þarf að vanda sig við orðfærið. Þannig er talað um
einkavæðingu bankanna, hina síðari. Þessari skilgreiningu er fleytt
inn í umræðuna af hálfu þeirra sem stóðu að því að markaðsvæða
bankakakerfið um aldamótin með þeim afleiðingum sem við
þekkjum. Bankarnir voru afhentir aðilum samkvæmt pólitískum línum.
Framsóknarflokkurinn gekk þar hart fram og af óbilgirni.
Sjálfstæðisflokkurinn passaði upp á sinn hlut. Um þetta er ekki
deilt lengur eftir ítarlegar rannsóknir. Þarna var skýr ásetningur
að baki, þar sem verið var að hygla tilteknum öflum á pólitískum
forsendum eins og við þekkjum.
Hvort stjórnvöld brugðust við vandanum sem skyldi
er sjálfsagt að rannsaka í kjölinn en áður en menn
fullyrða að ásetningur hafi verið að baki um að mismuna fólki og
fyrirtækjum, verður að draga andann og síðan vanda til
verka.
Í Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd kom málið upp og gekkst ég
sem formaður nefndarinnar fyrir því að fá ÖLL gögn sem beðið var
um. ÖLL.
Síðan bregður svo við að úrvinnslan er skyndilega komin á borð
Fjárlaganenfdar eins og við þekkjum. Nú standa mál svo að
þingi er að ljúka en ný nefnd tekur við þegar þing kemur saman
eftir örfáar vikur.
Það sama gildir um þetta mál eins og önnur mál, sem menn telja vera
óútkljáð, að þau hljóta að bíða. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
hefur einfaldlega ekki lagalega heimild til að leggja til viðamikla
rannsókn án þess að uppfylla áður tiltekin skilyrði svo
sem að leggja fram greinargerð og óska umsagnar stjórnar þingsins
um hana.
Það er ENGUM greiði gerður með fljótfærnislegum
handarbakavinnubrögðum. Um það höfum við dæmin.
Ögmundur