SAKAR EKKI AÐ SÝNA SANNGIRNI
Ég er Samfylkingarkona og ég segi eins og þú Ögmundur, að frekar
vil ég sósíaldemókrata en hægri krata úr Viðreisn eða Bjartri
framtíð. Það lið er meira að segja hægri sinnaðra en sjálft
Íhaldið. Síðan sakar ekki að sýna smá sanngirni. Gunnar Smári
Egilsson, ritstjóri, segir á samfélagsmiðlum að Samfylkingin sé að
hrynja út af oddvitum sínum Oddnýju, Össuri, Árna Páli og Sigríði
Ingibjörgu. Þau hefðu öll átt að segja af sér þegar Samfylkingin
missti flugið í kosningunum 2013. En ég spyr hvort eigi að gleyma
því að Samfylkingin mældist með vel yfir 30 prósentum í formannstíð
Össurar og hefur aldrei komist hærra! Er hann þá sökudólgurinn?
Hvílíkt rugl. Er ekki skýringa annars staðar að leita? Mér sýnist
vera flótti frá stjórnmálum, það skýri vinsældir Pírata sem ekki
þora að hafa skoðun á neinu máli. Það á náttúrlega við um fleiri.
Þess vegna er póltíkin að deyja og öllum að verða skítsama um
Alþingi (afsakið orðbragðið). Ég ætla nú samt að þráast við og
kjósa minn gamla flokk enda á hann betra skylið.
Guðfinna