Fara í efni

VILL AÐ REYKJAVÍKUR-BORG SVARI

Ég las grein þína um Iðnó og að borgin væri að fá nýjum rekstraraðilum húsið í hendur. Ég er leiklistarkona í efri aldursflokki og hef sitgið inn fyrir dyr í Iðnó fyrr og þá á sviðið, og síðar sem áhugamanneskja. Alltaf hefur Iðnó tekið vel á móti mér og í seinni tíð þakka ég það Margréti núverandi rekstraraðila. Þurfa fulltrúar okkar í stjórn Reykjavíkurborgar (sem ég jú kaus í síðustu kosningum) ekki að svara okkur um hvað valdi þessari furðulegu (og ósanngjörnu) ákvörðun þeirra. Eða er þetta kannski ekki endanlega ákveðið? Spyr sú sem ekki veit, en vill svör.
Leikkona á besta aldri