AÐ HRUNI KOMINN Maí 2017
Ég fagna því að fá fundinn á laugardag um
framtíð Kúrda. Ég verð því miður fjarri góðu gamni því ég verð
erlendis. Ég hef hins vegar lagt mig eftir því að fylgjast með
mannréttindabaráttu Kúrda og þeir eiga allan minn
stuðning. Annan fyrirlesarann, Havin Guneser, þekki ég af
afspurn en hún hefur þýtt höfuðrit Öcalans, helsta talsmanns Kúrda.
Allur heimurinn þarf að kynna sér pólitíska aðkomu hans að
lausn deilumála en hún er lýðræðislegri en almennt gerist!
Jóel A.
Lesa meira
Stigalausa stjörnufjöld,
stéttin gæfu rúna.
Brynjar átti besta kvöld,
bravó segi núna.
Kári
Lesa meira
Air Iceland Connect segjast þau nú heita sem áður
hétur Flugfélag Íslands! Mikið er þetta leiðinlegt. Félag sem
manni hefur þótt vænt um eða alla vega langað til að þykja vænt um,
hrindir manni frá sér með þessum hætti og segist vera að gera þetta
til að "tengja" betur! Aumingja fólkið! Ég get varla sagt að ég sé
reið, miklu frekar leið yfir því stjórnendur þessa félags, sem
nánast heyrir til grunnstoðanna, skuli ekki sjá sóma sinn í því að
reyna að passa upp á íslenskuna, því eins og þú bendir þá eru þau
að reyna það hjá Samtökum atvinnulífsins.
Sunna Sara
Lesa meira
Ömurlegu Íhalds dirrin díi
duglega Kata benti á
Og eintómu bulli í eftirpartýi
Engeyingar sögðu frá.
Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Ósköp er dapurlegt að fylgjast með Costco auglýsingabrellunni og
hvernig landinn bregst alltaf eins við, beðið í röðum og
fjölmiðlarnir síðan með beinar útsendingar og forsíðufréttir! Allt
ókeypis fyrir verslunarkeðjuna.
Ég var að vonast til að vera í útlöndum eða á heiðum uppi til að
forðast að þurfa verða vitni af niðurlægingu íslensku
hópsálarinnar. Myndir voru birtar af ...
Jóel A.
Lesa meira
Flugfélag Íslands fékk nýtt heiti
fáránlegt sýnist að mest öllu leyti
úr Íslensku máli
nú í ensku prjáli
Æ voru þeir með hausinn í bleyti.
Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Ætt´að láta eitthvað kjurt,
eftir stóra hnjaskið.
Leifsstöð vilja læða burt,
leggja undir braskið.
Kári
Lesa meira
Ég las grein þína um landsöluna og vesaldóm ríkisstjórnarinnar í
landsölumálum og hlustaði á ykkur Brynjar á Bylgjunni. Ég er
sammála þér í hverju orði og fannst mér ég heyra á Brynjari
að þetta væri farið að trufla pólitíska smavisku hans. En
hvernig væri að þingið og ríkisstjórnin gerðu eitthvað í málinu? Á
virkilega að láta auðkýfinga taka landið undan okkur? Það er
nefnilega enginn vandi að stela Íslandi!
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Kyssa vöndinn kallast það
krjúpir þú að tánum
Gárungar margir gera það
fylgir gróðahyggju-bjánum.
Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Einhver var ég annar fyrr,
oft þá tókst að sanka.
Um mig hefur staðið styrr,
stal þó aðeins banka.
Kári
Lesa meira
Hér yfirstéttin er ávalt hyllt
og hafin upp til skýja
Landið er orðið lúið og spillt
líklega best að flýja.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Spilltir leika landann illa
mútuveröld lifum í
Tortóla banka-bækur fylla
og Bjarni er líka í því.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Það sinnir ekki þjóðarvakt,
það við skulum muna.
Alþingi gengur alveg í takt,
við íslensku mafíuna.
...
Kári
Lesa meira
Borgaryfirvöld eru orðin ansi hreint verseruð í að svíkja borgarbúa í flugvallarmálinu og mér sýnist Sigurður Ingi vera að slípast til. Hann var bara sæll á fundinum með Degi, sagðist fara að vilja “sérfræðinga”, skítt með vilja borgarbúa.
Jóel A.
Lesa meira
Andrés stóð þar utangátta
allir höfuðið hrista.
Lengi við krata leitaði sátta
lítur nú til Sósíalista.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Já alveg er ég orðinn bit
Því ekkert Kötu gengur
Stefnir því í stjórnarslit
ekki starfhæf lengur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Björgólfur með barnslegt hjarta
blygðunarleysi vill aumu skarta
Þorstein vill verja
mútur burt sverja
og spillingu búa framtíð bjarta.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þvætti kemst á þurrt í Sviss,
þangað svo flytur í pokum.
Ákærir sjálfan þig sigurviss,
sækir og dæmir að lokum.
Kári
Lesa meira
Samherji þjálfar svika gengi
sárt bítur hungruð lús
þetta höfum við vitað lengi
vandinn er kominn í hús.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Græðgiskarlar geta flátt,
gaukað mútum sléttum.
Uppskiptingin endar brátt,
í öðrum glæpafléttum.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum