Fara í efni

MINNA ÁLAG - MEIRI UMÖNNUN OG MEIRI ÁNÆGJA!

Ég er búin að bíða lengi eftir þessum fundi um heima-aðhlynningu aldraðra, uppáhaldsumræðuefni stórnmálamanna fyrir kosningar  en gleymdasta málefninu eftir kosningar. Ég tek undir með Sigríði E. hér á síðunni að þessi þjónusta er mjög góð hjá borginni svo langt sem hún nær en að hún verði að ná miklu lengra. Það þarf að fjölga verulega í því góða starfsliði sem sinnir þessari þjónustu. Það þarf að borga vel fyrir þessa vinnu en ekkert síður þarf að draga úr álgainu sem þessu starfi fylgir og það verður aðeins gert með fleira fólki. Með þessu móti yrðu allir ánægðari, starfsfólkið og að sjálfsögðu það fólk sem nýtur aðstoðar þess.
Sunna Sara