Fara í efni

VERÐUGT UMRÆÐUEFNI

Það er virkilega verðugt umræðuefni á Iðnófundinum á laugardag, nefnilega umönnun aldraðra í heimahúsum. Fólkið sem sinnir þessu starfi er afburðagott en álagið á því er alltof mikið. Það þarf að stórefla þessa þjónustu sem þó er góð eins langt og hún nær - hún nær bara ekki nógu langt!
Ég kemst því miður ekki á fundinn því ég verð utanbæjar eins og það heitir á máli okkar höfuðborgarbúa. En ég óska ykkur góðs gengis með fundinn sem ég vona að verði fjölsóttur og málefninu til framdráttar.
Sigríður E.