Fara í efni

DÝR VERÐUR SOPINN

Það er rétt hjá þér að þegar við höfum tapað frá okkur neysluvatninu og það komið á einkahendur verður dýr vatnssopinn, jafnvel þótt við böðum okkur ekki úr einkavæddu flöskuvatni! En það verður líka dýrt að ferðast um Ísland og dýrara með hverri vikunni sem líður því sífellt fleiri stökkva upp á rukkunarvagninn. Ríkisstjórnin er hin ánægðasta með einkavæðingu náttúrunnar og almenningur andvaralaus ef þá ekki samþykkjandi. Þetta hét einhvern tímann að fljóta sofandi að feigðarósi.
Jóel A.