Fara í efni

SAMTRYGGING Á ALÞINGI

Það er rétt sem þú segir Ögmundur að alltaf er það mest sannfærandi þegar menn byrja á sjálfum sér! Það má til sanns vegar færa með ríkisstjórnina að hún geri þetta en með undarlegum og öfugsnúnum áherslum. Hún byrjar á því að skrúfa frá peningstreyminu úr ríkissjóði og eykur framlag til eigin þarfa um 362 milljónir! Þetta er kostnaðurinn við lýðræðið er gjarnan viðkvæðið þegar kostaðar eru heilsíður í blöðum með auglýsingum sjálfum sér til dásemdar. Annars eru ríkisstjórnarflokkarnir ekki einir um þetta, Samfylking, Viðreisn og Miðflokkurinn eru þarna í liði með VG, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Það er þetta sem kallað er samtrygging. Píratar og Flokkur fólksins mega eiga það að hafa þó streist á móti.
Jóel A.