Fara í efni

ALÞINGI DRÍFI SIG Í PÁSKAFRÍ

Ég legg til að Alþingi drífi sig í páskafrí og að því loknu strax í sumarfrí. Þá verður stutt til jóla. Í seinni tíð er ég aldrei í rónni þegar þingið er að störfum. Nú er okkur hótað með einkavæðingu raforkunnar og hugsjónafólkið í Viðreisn vill vín í búðir. Það er þeirra framlag þegar verkföll eru að skella á og flugið að fara á hausinn, Ákavíti í Bónus.
Við ykkur öll vil ég segja að þið eruð búin að standa ykkur svo frábærlega vel að þið eigið skilið hvíld í fríi - helst mjög löngu.
Jóel A.