AÐ HRUNI KOMINN Júní 2019
Nú lifnar við gamli vaninn
víst þekjum öll leiðina
Kominn er helvítis kaninn
aftur á Miðnesheiðnina.
Gáfnasvip hann Bjarni ber
þó brösugleg sé slóðin
Ég fljótlega mun forða mér
fái ´ann þjóðarsjóðinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ellina hér flestir fá
og falla í kör
Upphefð jú allir þrá
að verða SÖR.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég er jafngamall lýðveldinu
einn af fyrstu börnum þess
Yfir alþingi lauslátu og linu
er landinn almennt óhress.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Íslnskir blaða- og fréttamenn hafa ályktað til varnar Wikileaks. Það er fagnaðarefni og um leið undrunarefni. Ég hélt sannast sagna að íslenskir fréttamenn hefðu almennt lagt sig til svefns og svæfu svefninum langa þegar kæmi að gagnrýninni fréttamennsku, hvað þá að verja þá sem NATÓ ríkin ofsækja. Á þingi er í seinni tíð hins vegar lítið um varnir og orði aldrei hallað á blóðugt NATÓ hernaðarbandalagið. Um mál Julian Assange er helst spurt hver hafi sagt hvað og hver megi segja hvað, aldrei er spurt um afstöðu eða hún viðruð í málum af þessu tagi. Það róttækasta sem heyrist úr þinghúsi og ráðhúsi er krafa um að kæligeymslu verði komið fyrir í ...
Sunna Sara
Lesa meira
Núna er einn utanríkisráðherra að beljga sig út og vill fara í stríð við Íran.
Eftir því sem ég best veit þá réðust Íranir síðast á annað land áður en Bandaríkin voru stofnuð. Núna eiga Íranir að hafa ráðist á olíuflutningaskip frá Noregi og Japan.
Eftir því sem mig minnir þá var það Noregur sem hjálpaði Íran við að koma upp raforkuframleiðslu með kjarnorku.
Því er ólíklegt að ...
Davíð Örn
Lesa meira
Fyrirvara þeir fundu nú,
fylgja krepptum hnúa.
Lofsverð þykir lygi sú,
að láta þingmenn trúa.
Kári
Lesa meira
Þraut og mæðu þola má
Þeir halda ég sé skertur
Því orkupakka þvinga á
þingræðislega er ertur!
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Sögu er best að segja rétt
svo fjöldinn megi trúa.
Af orkupakka nú óttast frétt
eflaust þar öllu ljúga.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Allt Frá lesendum