Fara í efni

LJÓÐMÆLI UM AFMÆLI, ÞJÓÐARSJÓÐ OG ISAVIA

Tuttugu og níu taldi þar
tilkomumikið er hlaðið.
Í berjamó með börnum var
og nálgast hundraðið.

EKKI TRÚLEGT AÐ BJARNI SÉ AÐ HÆTTA.

Hættur við að hætta er?
heillar enn-þá fljóðin!
Bráðlega þó Bjarni sér?
auð og Þjóðarsjóðinn!

EÐA ÞANNIG SKO

ISAVIA nú illa stendur
eða þannig sko
Forstjórinn í fríið sendur
og milljarða borgum tvo.

Höf. Pétur Hraunfjörð.