Fara í efni

HEIÐURSDOKTOR MERITUS, INGA SÆLAND?

Margir hæddust að Ingu Sæland, alþingiskonu, þegar hún vildi loka landinu og helst smala öllum aðkomumönnum til landsins í sóttkví, eins konar fangabúðir. Á Aþlingi ver hlegið að Ingu og hún var síðan fengin sérstaklega í Kastljós  svo þjóðin fengi líka að hlæja. 
Svo lokaði Trump Bandaríkjunum, síðan var Danmörku lokað og Noregi og svo Evrópusambandinu. Á Ítalíu fór fólk að deyja í hundraðavís á dag… Nú er ekki lengur hlegið að Ingu Sæland. Ef fer fram sem horfir endar hún sem heiðursdoktor við Háskóla Íslands, alla vega verðlaunahafi fyrir framsýni. Já, eða … ja, það er nú það.
Sunna Sara