Fara í efni

KVÓTANN HEIM OG KÓRÓNA

Köllum nú kvótann heim
kíkjum á framsalið
Þetta vonda villta geim
virðist alveg galið.

Veiru fjandinn víða fer
váin er mætt á hlaðið
Engin fyrir endann sér
Icelandair fer í svaðið

Vinstri græn eiga í vanda
virðast lítið fylgjast með
Í stjórninni þeir illa standa
stefnulaus almennt séð.

Í vinahreyfingu virðist Kata
vandræði hennar allir sjá
Klókur Bjarni kann að plata
Kata stenst ´ann ekki þá.
Höf. Pétur Hraunfjörð.