Fara í efni

DANSAR HEIMSVALDA-POLKA

Takk fyrir greinina um Venesúela. Og þakkir líka til þeirra annarra sem hafa verið að skrifa í þessa veru, til dæmis um framferði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem tekur þátt í að níðast á fátækri þjóð með viðskiptaþvingunum á tímum heimsfaraldurs. Það sem stendur okkur náttúrlega næst er að horfa til ríkisstjórnar Íslands og hvernig hún dansar heimsvalda-polka. 
Í ríkisstjórinni hreyfir enginn andmælum og aldrei hef ég heyrt aukatekið orð á Alþingi gegn þessum yfirgangi BNA annars vegar og undirgefni Íslands hins vegar. 
Allir fullkomlega meðvirkir. 
Jóhannes Gr. Jónsson