Fara í efni

DÓMSMÁLAFRÚIN OG BRENNIVÍNS-HEILKENNIÐ

Það skýtur nokkuð skökku við,
ef skoðum málin brýn.
Að auka vill hún aðgengið,
og elskar brennivín. 

Lýðheilsan er læknum kunn,
líkar sumum miður.
Á Alþingi menn opna brunn,
en aðrir falla niður.
Kári