Fara í efni

Í FYRSTA, ÖÐRU, ÞRIÐJA OG FJÓRÐA LAGI

Í fyrsta lagi má spyrja hvort réttlætanlegt sé að setja stórar upphæðir (einn og hálfan milljarð) í að auglýsa Ísland nú þegar við opnum landið fyrir túrisma á nýjn leik. Stóð ekki til að gera það hægt og rólega?  
Í öðru lagi má spyrja hvort sú ríkisstjórn sé með fullum mjalla sem fjármagnar auglýsingaherferð sem byggir á því að útvarpa á víðavangi öskri og góli sem fólki erlendis er boðið að senda Íslandsstofu.
Í þriðja lagi og í ljósi þess að þetta er hluti af efnahagsráðstöfunum ríkisstjórnarinnar vegna veirufaraldursins(!!!) má spyrja hvort braggastráin dýru og margfrægu í Reykjavík blikni ekki í samanburði við þetta rugl?
Í fjórða lagi má spyrja hvort handritshöfundar að áramótaskaupinu geti ekki slakað á því handritið sé fullbúið.  
Jóhannes Gr. Jónsson