SAMHERJI BIÐST AFSÖKUNAR - EÐA ÞANNIG
						
        			25.06.2021
			
					
			
							
 
 Afsakið ástkæru vinir og þjóð
 á gróðabrautinni er oft svell
 En auðvitað erum indæl og góð
 og viljum axla þennan skell.
STYTTING VINNUTÍMA GAGNIST ÖLLUM 
 
 Nú vinnutíma styttum stund
 alþýðan stendur vakt
 Fjölskyldum það léttir lund
 og leiðist öll í takt.
AUÐVALDSHYGGJAN Í BOÐI V/G
,,Æ nú byrjar það allt aftur‘‘
Bjarni seldi bankann minn
 og bætti á vandann 
 ennþá er sami slagurinn
 við Elítu fjandann.
Bréfin eignast smátt og smátt
 á sorgarferli bendi
 hún kallar það víst þjóðarsátt
 þessi spillta hendi. 
 
 Höf. Pétur Hraunfjörð.
