Fara í efni

UM MEINT FORYSTUGEN OG VAXTAOKUR

Gulli sækir að Bjarna Ben
með baráttu og læti
Segist með sérstakt gen
sem forystuna bæti.

,,Hækkun vaxta Seðlabankans þrengja mjög að ungu fólki í landinu‘‘

Vextirnir hækka vandlega séð
Víst munar um prósentubrotið
Verkamannslaunin er víst með
Við sjáum nú fyrir gjaldþrotið.

,,HÆRRI VEXTIR MEIRI VERÐBÓLGA FLEIRI GJALDÞRORT‘‘
ALTAF SAMA HAGFRÆÐIN Á TÍU ÁRA FRESTI. HAFA MENN EKKERT LÆRT? KUNNA MENN EKKERT BETRA EÐA ANNAÐ? LÆKKA SVO VEXTINA ÞEGAR ALLT ER FARIÐ TIL FJANDANS EINS OG VENJULEGA EN BANKAR OG AUÐMENN HAFI MAKAÐ KRÓKINN ÞÓKNANLEGA Á TÍMABILINU SEM TEKUR VENJULEGA TVÖ OG HÁLFT ÁR! (ÞAÐ Á ALDREI AÐ FIKTA Í HÚSNÆÐIS VÖXTUM ALMENNINGS) SÚ ÁKVÖRÐUN KOSTAR ALLTAF VERÐBÓLGU OG GJLDÞROTA HRINU EINSTAKLINGA.
Vaxtahækkun helst ekki viljum
og vitleysuna alls ekki skiljum
já guð minn góður
enn þyngist róður
og mótmæli okkar hér ei dyljum.

Þyngist róður þrautir hef
Það er að koma kreppa
Fyrir lífstílinn ég lítið gef
launin mín rétt sleppa.

Nú barátta um brauðið er
kannski batnar hagur
þar engin fyrir endann sér
enda verkalýðs slagur.

Nú er vandi og mikil vá
Nú vil ég öllum segja
Nú vandamál má víða sjá
Nú væri best að þegja.

Nú er vitlaus vætutíð
vonleysi og ami
Undan þessu öllu svíð
engin heilsu frami.

Já árans baslið af og til
að mér setur vanda
Ég dottin er í djúpan hyl
dríf mig til útlanda.

Alla daga nú bænir bið
að batterí mitt hlaðist
Og ég fái loks sálar frið
 þó flest hafi tafist.

Höf. Pétur Hraunfjörð.