Fara í efni

SJÁUM HVAÐ SETUR

Skýrsluna hefði mátt skrifa betur
til nánari skoðunar landinn hvetur
þeir vinahóp töldu
og ættmenni völdu
í eftir á meðferð sjáum hvað setur.

,,Þrotabústjórinn‘‘

Hér í íbúðalána sjóða sukki
sést nú fátt til varna
Og frægu framsóknar kukli
fer í þrot hjá Bjarna.

,,Undirgefninn‘‘

Kyssa vöndinn kunna best
kært er auðmanna valdið
Á lands vísu það líka sést
að lofa hér margir íhaldið.

,,FASISTA AÐGERБ‘

Í sjónvarpinu ég upplifði sjón
sem fatlaður mátti þola
Foringinn var frjálshyggju Jón
vill fátækum í burtu bola.

,,Lífshamingju leituðu að‘‘

Flóttamenn fluttu úr landi
og fatlaða lögðu hendur á
Hjá löggunni er ljótur andi
leiðum Nonna Gunnars frá.

Höf. Pétur Hraunfjörð.