Frá lesendum
31. Janúar 2008
Það var gaman að hlusta á heimspekinginn Zizek ræða hugðarefni sín í Kiljunni í gær. Framsetning öll var mjög hröð og allt lagt undir...Kiljan er án efa besti fjölskylduþáttur sem sjónvarpið býður uppá og mætti vera á kastljóstíma til að mæta betur þörfum yngri aðdáenda.
Bjarni
25. Janúar 2008
...Ég er gáttuð á fréttum af fatastyrkjum og sporslum til stjórnmálamanna og þykir mér augljóst að þeir verði að gera grein fyrir sínum málum, ekki bara Björn Ingi Hrafnsson, sem allir einblína á, heldur aðrir stjórnmálamenn einnig. Á baksíðu DV kom fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefði einnig fengið fatapeninga án þess þó að upplýst væri hve mikið þetta væri. Hafa stjórnmálamenn VG þegið ...
Hafdís
25. Janúar 2008
...framganga Guðjóns Ólafs var eins og við mátti búast... en hvað skyldi Björn Ingi hafa fengið í bakið? Víst er að ekki var það venjulegt þursabit. Og þar sem mér þykir mikill sjónarsviptir að Birni Inga Hrafnssyni úr pólitíkinni tel ég fulla ástæðu til þess að bakmein hans verði skoðað miklu betur en gert hefur verið. Þá er ekki ólíklegt að fleiri stjórnmálamenn þurfi einnig á bakeftirliti og rannsóknum að halda...
Þórður
24. Janúar 2008
...Það er kaldhæðni örlaganna að daginn sem við fögnum því að 100 ár eru liðin frá því konur tóku fyrst sæti í borgarstjórn skulu borgarbúar horfa upp á ósvífnasta valdabrölti karla um langt skeið. ...Góðu fréttirnar og reyndar þær stærstu finnst mér vera sú mikla samstaða sem Vinstri græn, Samfylking, Framsókn og Margrét Sverrisdóttir hafa sýnt. Þau koma fram sem ein heild þrátt fyrir erfiða tíma og er ég sannfærð um að þáttur Svandísar Svavarsdóttur sé mikill í þessari samtöðu. Ég get sagt fyrir mitt leyti að ég mun mæta í Ráðhúsið til að sýna andstöðu mína á í dag...
Guðrún Sveinsdóttir
23. Janúar 2008
...Síðan er það hnífafólkið. Mér sýnist fleiri en Guðjón Ólafur með hnífasett í bakinu. Óheilindin grassera, hnífsstungur, ósannindi og óheilindi. Er þetta Reykjavík í dag? ...myndin sem ég sendi þér segir það sem segja þarf...
Þorgrímur
18. Janúar 2008
Mig langar til að byrja á að þakka þér fyrir allt gamalt og gott og ánægjulegt samstarf á liðnum árum. Þinghaldið byrjar vel á nýju ári: Árni Þór hóf leikinn með breiðsíðuárás á fjármálaráðherrann og fer mjög faglega að. Við borð liggur að maður kenni dálítið í brjósti um þennan gæfulitla hrossalækningameistara. Erindi mitt að þessu sinni er reyndar þessi einkennilega frétt Morgunblaðsins í gær um að Sultatangavirkjun sem ku framleiða ein 120 megavött er óstarfhæf um þessar mundir og er talið að ...
Guðjón Jensson
14. Janúar 2008
...Getur verið að Árni Páll ætti að færa sig yfir í Sjálfstæðisflokk eða er Samfylkingin virkilega orðin svona hægri sinnuð? Spyr sú sem ekki veit. Mér fannst Árni Páll vera að segja að framtíðin væri áframhaldandi samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar um ókominn tíma. Ef svo er þá spyr ég hvort það sé ekki ráð fyrir félagslega þenkjandi kjósendur Samfylkingarinnar að færa sig um set og flytja sig yfir í Vinstrihreyfinguna grænt framboð?
Sunna Sara
13. Janúar 2008
Í 24 Stundum lýsir Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, því yfir að honum líði vel í ríkisstjórninni. Í Silfri Egils lýsir Ragnheiður E. Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, því yfir að sér líði afar vel í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar ... Hefur þú skýringu á því Ögmundur, hvers vegna stjórnarsinnar eru svona uppteknir af því að tala um vellíðan sína í ríkisstjórn?
HaffI
9. Janúar 2008
Mig langar bara að þakka þér Ögmundur fyrir góða grein þína varðandi læknaritara, ekki veitir okkur af stuðningi. Ég hef verið læknaritari alla mína starfsævi og finnst mjög vegið að mínum starfsheiðri með þessari framkomu...
Læknaritari
8. Janúar 2008
Sem læknaritari á Landspítala vil ég þakka þér fyrir þína góðu grein hér á heimasíðunni og stuðning við málstað læknaritara...
Læknaritari á Landspítala
5. Janúar 2008
Gætu landeigendur við neðri hluta Þjórsá ekki bara risið upp sjálfir og látið lögreglu stöðva þetta tafarlaust? ...
Jón Þórarinsson
4. Janúar 2008
...Að endingu vil ég lýsa ánægju minni yfir því ef umferðarlagasektir verða tekjutengdar, eins og samgönguráðherra íar að. Þar þarf þó að vanda sig, því það er ekki nóg að seðlabankastjóri eða útvarpsstjóri borgi tíu sinnum hærri sekt en lífeyrisþegi, því lífeyrisþeginn er varla borgunarmaður fyrir sektinni á meðan hinir taka varla eftir því að örlítið minna hefur safnast í sparibaukinn. Það nægir því ekki að fara eingöngu eftir tekjunum, heldur þarf líka að taka tillit til þess hvað sektin kemur illa við þann seka. Ég vona svo sannarlega að VG verði samgönguráðherranum innan handar að lagfæra umferðarlögin og bæta þá hörmulegu umferðarmenningu sem við búum við á Íslandi.
Sigurjón
3. Janúar 2008
Lög um forseta Íslands eru rýr; það er auðvitað fyrst og síðast stjórnarskráin sjálf. Ákvæðin þar um forsetann þarf að endurskoða af því að mörg þeirra eru úrelt of fjarstæða og hafa í raun alltaf verið.Svo er það kjörtímabilið. Rökin fyrir því að takmarka embættistíma forseta Íslands eru að einhverju leyti komin fram. Hugmyndin um sex plús sex ár sem Steingrímur J. Sigfússon nefnir er þekkt. En hver eru rökin? Jú, rökin eru þau að ...
NH
3. Janúar 2008
...Í því ljósi finnst mér ráðherranum óvirðing sýnd með því athæfi að troða höfðinu á honum ofan í áfengisflösku. Vona ég að þú gerir ekki svona...
Sigurfljóð Hermanns
2. Janúar 2008
Í umræðunni sem vonandi verður um rauðvínsgjafirnar á ráðamenn nú um jólin fyndist mér mikilvægt að velta því upp að ef æðstu ráðamenn eiga að komast upp með þetta, hvað sé þá hægt að segja ef yfirmenn lögreglu, skattrannsóknar og annarra eftirlitsstofnanna fara að taka þá sér til fyrirmyndar. Hvers á t.d. ríkissaksóknari að gjalda? Eða fær hann kannski sína flösku? Hvað yrði sagt ef Jói í Bónus gæfi honum hangilæri í soðið? Hann hefur allavega ekki verið ítrekað...
NN