Frá lesendum
30. Júlí 2012
"MEĐ ANDARTAKS-NETLEIT..."
Það hefur vakið athygli að fyrirætlanir Núbós á Grímsstöðum virðast taka stöðugum breytingum. Heimildirnar um það eru einkum ummæli Núbós sjálfs við erlenda fjölmiðla og svo orð svaramanns hans á Íslandi, Halldórs Jóhannssonar. Það er engin ástæða til að rekja þá sögu en þó vekja ummæli sem höfð hafa verið eftir Halldóri í fjölmiðlum í dag athygli (30. ágúst - sjá t.d. Eyjuna http://eyjan.pressan.is/frettir/2012/07/30/halldor-johannsson-nubo-getur-ekki-vedsett-land-grimsstada-engin-tengsl-milli-grimsstada-og-langanesverkefnis/).
Þar segir hann að Núbó hafi engan áhuga á norðurslóðasiglingum þó hann tengist þeim málum sjálfur. Það á semsagt að gera skýran greinarmun á hótelbyggjandanum Núbó og umboðsmanni hans, Halldóri Jóhannssyni, sem hefur áhuga á norðurslóðamálum. Andartaksnetleit sýnir þó að Núbó sjálfur virðist ekki gera þennan sama greinarmun. Hann tjáir sig t.d. ekki einvörðungu um hótelbyggingar þegar rætt er um Ísland heldur virðast þeir Halldór hafa sameiginlegt áhugamál í þessum norðurslóðasiglingum. Í viðtali við blaðamann Berlingske í Kína segir Núbó frá því að hann hafi rætt við utanríkisráðherra Íslands og forsetann um hversu vel Ísland liggi við nýjum siglingaleiðum og Íslendingar eigi ekki að vera hræddir við að þjónusta kínversk skip (http://kinablog.dk/2011/10/03/huang-nubo-den-kinesiske-milliard%c3%a6r-og-island/).
Þá kemur fram í ferðabloggi sem Ragnar Baldursson virðist hafa haldið um ferð Núbós, Hjörleifs og félaga til norðurpólsins, að þeir hafi á kvöldin rætt um þær breytingar sem orðið gætu á alheimshagkerfinu þegar skipasiglingar milli Íslands og Kína myndi breyta vöruflutninganeti heimsins (http://arcticportal.org/old-news/403-arctic-fox-last-degree-ski-expedition) .
Í sjálfu sér er ekkert merkilegt að Núbó hafi áhuga á siglingum milli Evrópu og Kína. Ég vildi bara benda á að ummæli Halldórs Jóhannsonar um að Núbó hafi ekki áhuga á öðru en hótelum virðist ekki samræmast veruleikanum að fullu.
Matthías
Frá lesendum
16. Maí 2013
BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN
Þór Gunnlaugsson
16. Maí 2013
FRJÁLST FLĆĐI
Óskar K Guðmundsson fisksali
12. Maí 2013
ÝMIS SPJÓT
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali
6. Maí 2013
GENGUR VONUM FRAMAR AĐ...
Sunna Sara
5. Maí 2013
NAUĐSYNLEGT AĐ RĆĐA OPNUM HUGA
H.P.
4. Maí 2013
Á AFTUR AĐ STELA ÍSLANDI?
Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara
4. Maí 2013
ATHYGLISVERĐ MÁLSTOFA
Guðjón Jensson
4. Maí 2013
ŢAKKIR
Ísak Pétur Lárusson
2. Maí 2013
STÖĐVAĐU GRISJUN Í ÖSKJUHLÍĐ!
Konráð Bragason
2. Maí 2013
NÚ SKRÍĐA BRASKARA-ÖFLIN FRAM
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ












