Já, forsætisráðherrann okkar, Davíð Oddsson, kom, sá og sigraði í Washington á 1800 sekúndna fundi með Bandaríkjaforseta og líflegum blaðamannafundi í kjölfarið.
Í daglegu starfi er þjóðin mín þreyttþá þambar hún öl og vín,yfirleitt skilur hún ekki neitten ofmetur verkin sín.. Um helgar er þjóð mín frekar fullþá fær hún úr víni kraft,hún æðir um strætin með allt sitt bullog elskar að rífa kjaft.. Hér þykjumst við vera þæg og góðþótt þjóðin sé oftast hálf.Og hver á að skilja skrítna þjóðsem skilur sig ekki sjálf?. Kristján Hreinsson, skáld
Vegna ummæla Halldórs Ásgrímssonar:,,Sá vægir sem vitið hefur meira". Varð þessi vísa til: Á Íslandi nú á sér staðótakmarkað þvaðurþví Halldór Ásgríms heldur aðhann sé greindur maður. Kristján Hreinsson, skáld.
Kæri ÖgmundurAf nýjustu fréttum má ráða að stjórnarherrarnir hafi hugsað sér að ekki verði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um hin svokölluðu fjölmiðlalög sem Alþingi samþykkti nýverið og forseti Íslands kaus síðan að undirrita ekki.
Sæll Ögmundur! (Þetta er ekki fyrirspurn frá mér heldur álitsgjöf). Ég er nú svo aldeilis hissa! Ég sperrti eyrun þegar þú svaraðir spurningu fréttamanns Sjónvarpsins um það álit þitt að kónga- og auðmannadekur hafi keyrt úr hófi fram á Bessastöðum og hélt að þú myndir útskýra hvað þú ættir við.
Sæll Ögmundur. Ég þakka þér fyrir stórgóða grein um forsetaembættið en það er þó að mínum dómi stór ljóður á annars ágætu ráði þínu þegar þú ferð að tala um kónga- og auðmannadekrið á Bessastöðum.
Heill og sæll Ögmundur.Ég neita því ekki að heldur þótti mér tyggigúmmíkenningin, sem þú varst einhvern tímann að gantast með hér á síðunni, vera á jaðri aulafyndninnar og reyndar alveg út í hött.