Kærunefnd jafnréttismála komst nýlega að þeirri niðurstöðu að dómsmálaráðherra hefði átt að skipa konu í embætti hæstaréttardómara í stað karls, enda stóð honum til boða kvenkyns umsækjandi sem var ekki einasta jafn hæfur og sá sem skipaður var, heldur hæfari.
Sæll Ögmundur.Heyrðu, mér datt í hug að senda þér smá tölvupóst vegna einarðs stuðnings þíns við umræðuna um spilafíkn sem hefur verið ansi mikil hér á landi að undanförnu.Ég er algjörlega sammála þínum málflutningi.
Sæll, ÖgmundurÉg var að lesa grein þína um harmafregnina frá Verslunarráði Íslands, þar sem ráðið grætur yfir því að ekki sé hægt að einkavæða Gvendarbrunnana og aðrar vatnsveitur í landinu.
Sæll félagi.Ég var að sjá grein þína á vefnum. Þú skrifar: "Hann tínir fyrst til þegar áfallnar skuldbindingar, horfir síðan fjóra áratugi fram í tímann og bætir við öllum skuldbindingum sem líklegt er að safnist upp á þeim tíma og lífeyrissjóðirnir komi til með að þurfa að greiða út næstu þrjá áratugina þar á eftir eða fram til um 2070.
Halldór Ásgrímsson verðandi forsætisráðherra segir að menn hljóti að styðja vini sína. Væntanlega á ráðherran við að annars sé vináttan bara plat og geta allir tekið undir það.
Blessaður.Þetta er fínt innleg hjá Guðrúnu (sjá les.bréf 10/3). Hins vegar er unglingadrykkja þ.e.a.s hve oft unglingar "detta í það " að aukast hvernig sem á það er litið og því ekki um tegundabreytingu að ræða.
Um leið og ég þakka félaga Þjóðólfi athyglisverðan pistil um hægðakenningu Guðna Ágústssonar, en hún gengur út á það að góðar hægðir séu betri en miklar gáfur, vil ég benda mínum kæra vini á mikilvægt atriði sem mér sýnist að honum hafi algerlega sést yfir.
Sæll, Ögmundur. Ég er alveg sammála þeim sem vilja allar bjórauglýsingar burtu úr sjónvarpi og blöðum. Hitt gegnir furðu að enginn stjórnmálamaður sem nú er á þingi skuli hafa beitt sér gegn því að eimingartæki og efni tíl vín- og ölgerðar skuli vera til sölu í ýmsum verzlunum.