Sigurbergur Árnason skrifar: ÍRAK NORÐURSINS
Tímasprengja kapítalismans er sprungin í Írak norðursins. Og
drunurnar bergmála um almanakið, vikur, mánuði og ár. Heimatilbúin
sjálfsmorðsklasasprengja, sprakk inní þjóðarsálina, særði stolt
hennar og braut efnahagslega sjálfsvirðingu í mél í beinni
útsendingu á flatskjá fjölmiðlafrelsisins. Krónan er komin í
neyðarmóttöku fyrir þolendur efnahagsafbrota, niðurlægð og svívirt
með brotna sjálfsmynd og bíður eftir dollaraplástri. Ríkisstjórn
frjálshyggjunnar, vitorðsmenn spillingar og valdníðslu, með
krónískt gróðapungsig, sat við veisluborð upptekin við að hygla
sjálfri sér, bestu vinum sínum og skyldmennum þegar óafturkræft
voðaverkið var vandlega undirbúið árum saman og framið í skjóli
nætur. Fnykurinn af daunillum Hólmfret frjálshyggjunnar,
hættulegasta efnavopni nútímans, sem fannst ekki í Írak, þrátt
fyrir ítarlega leit, er á Íslandi og veldur klígju, ógleði og
kvalafullum dauða í hægðatregðu hagkerfisins. Handrukkarar
ríkisvaldsins, með áttatíu milljarða sakaruppgjöf eru risnir upp
frá dauðum, úthlutandi veðköllum á færibandi sjálftekjunnar,
snuðrandi kringum ryðgað dánarbúið, nýkomnir úr hundahreinsun
fjármálaeftirlitsins. Hin staðfasta þjóð horfir ringluð til
vestrænna vina sinna, með allt niðrum sig og þjóðhagslegt dimmviðri
heilsuspillandi braggahverfa viðreisnarinnar stígur uppúr
skotgröfunum, sem heimilin eru byrjuð að grafa ofan í skuldirnar,
sem ókomnar kynslóðir hafa ekki pantað með aukaáleggi.
Selskinnskápuklæddir valdhafar, bíða eftir tveimur fjörutíu feta
gámum fullum af dollaraseðlum og slá skjaldborg um sjálfa sig og
fjölga um tvöhundruð og fimmtíu í lýðveldisverðinum til að veðsetja
fólkið sem er byrjað að efast um tilverurétt sinn og sér fylgjur
Intrum & Co. snuðrandi í heimkeyrslunum eins og hýenur.
Nú er fátt til úrræðis en að strjúka rykið af fornaldarfrægðinni,
sem var lokuð inni í sprengiheldum bókhlöðum og rifja upp hvað það
var sem gerði okkur að þjóð fyrir meira en þúsund árum í stað þess
að láta gerspillta og fávísa valdhafa kúga okkur í hraðferð til
glötunar.