Fara í efni
SARAH GLYNN: LAST WEEK IN KURDISTAN

SARAH GLYNN: LAST WEEK IN KURDISTAN

Fullur titill á þessum nýjasta pistli Söruh Glynn er Turkey´s hold on Kurdish progress: Last week in Kurdistan. Hér fjallar hún um stöðu Kúrda í Tyrklandi, Sýrlandi, Írak og Íran en í öllum þessum löndum er nú þrengt að Kúrdum með stuðningi vestrænna þjóða - sums staðar að undirlagi þeirra. Undantekningin er Íran því þar er það klerkaveldið sem sér um ofbeldið innan sinna landamæra og utan reyndar einnig því stöðugar árásir er gerðar á búðir landflótta íranskra Kúrda í Írak.

Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingunni

... Enda þótt Evrópusambandið hafi verið stofnað til að koma á varanlegum friði í Evrópu hefur sambandið verið í farvegi hervæðingar í nokkurn tíma. Umræða um ESB hér á landi þarf að taka mið af þessari þróun. Við erum þegar í hernaðarbandalaginu NATÓ - því miður - og þurfum ekki að ganga til liðs við þjóðir sem eru að hervæðast og eru tilbúnar í stríð ...
EVRÓPURÁÐIÐ VARAR VIÐ SKERÐINGU Á TJÁNINGARFRELSI Í ÞÝSKALANDI – SEE REPORT

EVRÓPURÁÐIÐ VARAR VIÐ SKERÐINGU Á TJÁNINGARFRELSI Í ÞÝSKALANDI – SEE REPORT

Í skýrslu Michael O’Flaherty, talsmanns Evrópuráðsins í mannréttindamálum (Human Rights Commissioner), sem birt var í Strasborg 15. apríl síðastliðinn, segir að verulega sé nú þrengt að tjáningarfrelsi í Þýsklandi einkum tjáningarfrelsi þeirra sem gagnrýna Ísraelsríki vegna stríðsreksturs á Gaza. Ekki sé nóg með að gagnrýnendur séu beinlínis sóttir til saka, heldur eru fundir bannaðir og ... See reoport ...
LEIÐTOGAR Í ÁFALLI

LEIÐTOGAR Í ÁFALLI

Fregnir frá Washington herma að maður með skotvopn hafi ætlað að ráða Donald Trump Bandaríkjaforseta af dögum. Samherjar Donalds segjast vera í áfalli. Macron Frakklandsforseti brást snarlega og hét stuðningi við fórnarlambið sem næstum varð. Starmer, forsætisráðherra Bretlands lýsti því strax yfir að vegið væri að tjáningarfrelsinu og svipuð skilaboð berast frá fjölmörgum handhöfum „vestrænna gilda“ í Brussel ... Sami Trump og sömu leiðtogar
ÁHUGAVERÐUR FUNDUR Á AKUREYRI UM ESB OG SJÁVARÚTVEG

ÁHUGAVERÐUR FUNDUR Á AKUREYRI UM ESB OG SJÁVARÚTVEG

Samtökin Til vinstri við ESB standa fyrir áhugaverðum fundi á Akureyri á laugardag um Evrópusambandið og sjávarútveg. Enda þótt þessi samtök sem kenna sig við vinstri pólitík standi að fundinum koma frummælendur víðar að en frá vinstri enda varðar framtíð sjávarútvegs á Íslandi ladsmenn alla og mikilvægt að fólk hvar í flokki sem það stendur skilji hvað það þýðir í raun að afhenda Evrópusambandinu forræði yfir sjávarauðlindinni ...

STRÍÐIÐ Í BÍÓ

Snemma í apríl árið 2026 horfði ég á kvikmyndina Sound of Falling. Í mars sama ár sá ég Amrum og Jojo Rabbit sá ég nokkrum árum fyrr. Þessar ólíku en afar áhrifamiklu kvikmyndir eiga það ekki aðeins sammerkt að hafa verið sýndar í einu besta kvikmyndahúsi Evrópu, Bíó Paradís, heldur fjalla þær um lífið í skugga stríðs ...
LÖGBROT Í BOÐI LÍFEYRISSJÓÐA LANDSMANNA

LÖGBROT Í BOÐI LÍFEYRISSJÓÐA LANDSMANNA

Lífeyrissjóðir landsmanna starfa í skjóli laga. Öllum er gert að greiða í lífeyrissjóði samkvæmt lögum. Þetta virðast lífeyrissjóðirnir bærilega sáttir við. En þar með lýkur stuðningi þeirra við lögin að ekki sé minnst á þau „gildi“ sem lífeyrissjóðirnir segjast halda í heiðri. Að þessum gildum og ábyrgð er vikið í erindi sem ...
SARAH GLYNN ON DIRE DEVELOPMENTS IN MIDDLE EAST

SARAH GLYNN ON DIRE DEVELOPMENTS IN MIDDLE EAST

Hér birti ég nýjan vikuskammt Söruh Glynn frá Strassborg (þar sem hún starfar í þágu Kúrda) um þróun mála í Kúrdistan (Sýrandi, Tyrklandi, Írak og lítillega Íran) en ljóst er að nýlenduveldin gömul (hin evrópsku) og ný (BNA) auk að sjálgfsögðu Ísraels, skilja eftir sig foruga slóð í Mið-Austurlöndum sem reyndar annars staðar þar sem ... Personally I want to add that while the Kurds ... need the help from me and you; we - me and you – no less need their help ...
GÓÐUR FUNDUR Í BREIÐABLIKI

GÓÐUR FUNDUR Í BREIÐABLIKI

... Sjálfum fannst mér framsöguræður þeirra Ernu Bjarnadóttur, hagfæðings, Haralds Ólafssonar, formanns Heimssýnar og Jóns Bjarnasonar, fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra vera góðar og upplýsandi en þau voru auk mín frummælendur á fundinum. Primus motor að baki honum var hins vegar heimamaður á Snæfellsnesinu, Gísli Guðmundsson ...

ÞRÝSTINGUR Á ÍSLENDINGA AÐ GANGA Í EVRÓPUSAMBANDIÐ Hræðsla, ótti og pólitísk rök

Kári er ómyrkur í máli í þessari ítarlegu skýrslu sinni og klykkir út með þessari vísu: Veðrið mun lagast og verðurðu sæll, veglaus á ísalandinu. Afsalar frelsinu og endar sem þræll, í Evrópusambandinu.