Frjálsir pennar Janúar 2020
Hér á eftir verður haldið áfram þar sem frá var horfið síðast, fyrir áramót, að rekja í stuttu máli innihald raforkutilskipunar ESB nr. 2018/944. Síðast var fjallað um 9. gr. tilskipunarinnar og endað þar. Er þá komið að 10. gr., III kafla. Sá kafli fjallar um „valdeflingu neytenda“ [consumer empowerment] og „neytendavernd“. Í 1. mgr. 10. gr. segir efnislega að aðildarríki [ESB] skuli tryggja að lokakaupendur (viðskiptavinir) hafi rétt til þess að fá rafmagn frá veitu, samkvæmt samningi hennar, óháð því í hvaða aðildarríki veitan er skráð, að því gefnu að ...
Lesa meira
Abdul-Mahdi forsætisráðherra Íraks segir Soleimani yfirhershöfðingja hafa verið í opinberum erindagjörðum þar í landi þegar hann var myrtur, að Bandaríkin hafi óskað eftir milligöngu Mahdis í deilu BNA og Írans og Soleimani stefnt á hans fund af þeim ástæðum. Hann kom í venjulegu áætlunarflugi til Bagdad ... Dráp á opinberum sendimanni er gróft brot á alþjóðalögum. Soleimani var næstvaldamesti maður í Írans og þjóðhetja. Það er erfitt að hugsa sér nokkra grófari ögrunaraðgerð gagnvart Íran né heldur grófari íhlutun í málefni Íraks. Þetta er utanríkisstefna sokkin niður í glæpamennsku ...
Lesa meira
Á fátæktinni fékk að kenna
og faðirinn snortin sari
Þá alvaran fór upp að renna
úr varð Gunnar Smári.
Þá sósíalisminn í sálina rann
er samhjálp kynntist drengur
Við kapítalisma ei kunni hann
enda kallaður alþýðu fengur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Engar vangaveltur voru um málið og þá hvort ekki hefði verið rétt að leyfa fólkinu að fara til síns heima eins og við hin gerum ef við smitumst af veirunni! Er það þá líka forréttindafrekja? Ferðamennirnir sem hingað komu vitandi um sóttkvíarskylduna færu síðan á hótel og greiddu þar að sjálfsögðu fyrir sig. Í fréttatíma Sjónvarps var ekki boðið upp á slíka málefnalega umfjöllun.
Fréttastofa sem setur málin svona fram í viðkvæmu deilumáli veldur ekki hlutverki sínu um að vera upplýsandi og málefnalegur miðill heldur kemur fram eins og dómgreindarlaus áróðursvél fyrir sjónarmið valdhafa.
Í þessum viðkæmu málum er beinlínis óábyrgt að ...
Sunna Sara
Lesa meira
Það var illa til fundið af Kára Stefánssyni í Kastljósi Sjónvarpsins að sveija á Brynjar Níelsson, alþingismann, og uppnefna hann fyrir að hafa vogað sér að fara til útlanda. Ef Brynjar Níelsson hlítir sóttvarnareglum á hann ekki að þurfa að sitja undir svívirðingum, hvorki af hálfu Kára Stefánssonar né annarra. Hvert stefnir þetta þjóðfélag okkar?
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Brynjar Trump brögðin kann
fátt bítur á guttann
Á sólarströnd nú situr hann
og sendir okkur puttann.
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Að standa í þessu er stöðugt puð,
styðjum við Frakka og Belga.
Við trúum á okkar evrópska guð,
inngöngu í sambandið helga.
Að sitja á þingi og sulla með leir,
sannleikann móta ég hálfan.
Þruglið úr höfðinu þoli ekki meir,
þess vegna kæri mig sjálfan.
Evrópu selja áfram völd,
engar leiðir góðar.
Braska þau á bakvið tjöld,
beygja stoðir þjóðar.
...
Kári
Lesa meira
Hælið fyrir ríka öskurapa: Öskur og hvæs taugatrekktra og ríkra í hátalarakerfi, gegn óþolandi kyrrð öræfa landsins og gegn kyrrlæti valdra náttúrudásemda, varð stofn að ríkiskynningu til erl.ferðamanna nýlega.”Þeir ríku gráta mest” er sagt, þeir búa oftast við sálarkvalir. Slíkt mannval er einmitt æskilegast gesta til landsins, peningar þeirra í boði. “ Komið og öskrið á kyrrðina” (gegn greiðslu), er því tilboð íslenskra stjórnvalda til ríkisfólks heimsins, þess sem oftast grætur í hjarta sér þótt úr gulli sé gert. Þekkingu á bágu sálarlífi auðmanna er vel til að dreifa á Íslandi, hana má fénýta alþjóðlega. “ Komið til Islands, grátið, gólið, hvæsið, öskrið að vild” og græjurnar eru til reiðu. Vonin er ...
Grímur
Lesa meira
Nú fer páska helgin í hönd
hér margir láta sig dreyma
Vandamál sjáum víða um lönd
verum öll dugleg heima.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Ég er sammála þér varðandi skynsemina, hún hlýtur að þurfa að fá að vera með. Ferðamálaráðherrann sem fór í partí með vinkonum sínum í miðju kófinu lætur nú loka annað fólk inni í hótelfangelsi og ríkisstjórn sem lætur milljarða í að auglýsa að fólk eigi að drífa sig til Íslands, lokar svo gestina inni í fangabúðum sem skattgreiðendur þurfa að borga fyrir. Eru engin takmörk? Var verið að tala um skynsemi eða kannski skort á henni? Auðvitað átti ekkert að auglýsa að fólk ætti að koma við þessar aðstæður! Og þarf ekki að ræða við ferðafyrirtækin sem auglýsa helgarferðir til að sjá eldgos? Hvernig væri að slá í einn fund í þjóðaröryggisráðinu þar sem þau sem í því sitja gætu tekið púls hvert á öðru? Það er orðið eitthvert skammhlaup í heilabúunum sýnist mér.
Sunna Sara
Lesa meira
Stjórnvöldin undir stórútgerð hlaða,
stórlega margt er fúið.
Fjárglæframenn valda feikna skaða,
færist á þjóðarbúið.
...
Kári
Lesa meira
Nú vorið nálgast bjart og hlýtt
Nú kemst ég brátt á sjóinn
Nú verður hér fleyi úr fjöru ýtt
Nú farinn er allur snjórinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Allt Frá lesendum