Frjálsir pennar Júní 2020
Þegar valdaklíkan á Alþingi verður búin að ljúga Ísland inn í Evrópusambandið, ekki síst með þeim „rökum“ að þjóðin sé ekkert á leiðinni þangað, er ljóst að mörg sund munu lokast. Þjóðin mun missa þann rétt að gera alþjóðlega samninga við þriðju ríki [ríki utan ESB] enda fellur sá réttur undir „exclusive competence“ hjá ESB. Sú niðurstaða fæst með því að lesa í samhengi 2. mgr. 3. gr. TFEU (Lissabon-sáttmálinn) og 216. gr. TFEU. Í 3. gr. kemur fram á hvaða sviðum ESB hefur ...
Lesa meira
Í mótmælaólgunni miklu í Bandaríkjunum eftir dráp lögreglunnar á George Loyd í Minneapolis felst augljóslega gríðarmikil grasrótaruppreisn gegn ríkjandi kerfi. Sterk öfl reyna þó mjög að koma því til leiðar að broddur mótmælanna sneiði framhjá valdakerfi bandaríska auðvaldsins. Hér verða settar fram nokkrar ályktanir um mótmælahreyfinguna ...
Lesa meira
Nú verður enn haldið áfram að rekja innihald tilskipunar Evrópuþingsins og Ráðsins 2019/944 um raforku. Eins og áður er komið fram er hún hluti af orkupakka 4 („Vetrarpakkanum“). Þessi vegferð skiptir gríðarlega miklu máli fyrir íslenska þjóð enda margt sem þarna hangir á spýtunni. Það er hvorki meira né minna en öll raforkuframleiðsla, dreifing og sala hennar. Það er í fullu samræmi við orkupakkana sjálfa að „skera pylsuna“ í þunnar sneiðar og útheimtir umrædd tilskipun því endurtekin greinaskrif ...
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Lesa meira
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Lesa meira
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Lesa meira
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum