Frjálsir pennar September 2020
... Hræddir eru nú íslenskir lífeyrissjóðir, sem þegar hafa skráð yfir 5 ma skaða af fyrri stuðningi við BakkiSilicon hf, en gætu tapað þrefalt því til viðbótar eins og nú horfir.
Krísan er marghliða. Áður en drullumall kola og grjóts kísilvers PCC á Bakka fór í vaskinn datt upp fyrir plan um risaálver ALcoa á þeim stað.
Afhroð arftaka þess er því sérstakt reiðarslag fyrri boðbera stóriðju, sem snilldarráðs.
“ Bakkakrísan” er ekki bara einfalt peningalegt afhroð stórra málsaðila ...
Lesa meira
... Vonandi hefur þessi stutta umfjöllun, í tveimur greinum, fært einhverja lesendur nær skilningi á alþjóðlegum dómstólum og gerðardómum. Segja má að hlutverk alþjóðlegra dómstóla, eins og t.d. stríðsglæpadómstóla, sé ekki hvað síst að senda skýr skilaboð um það að sameinuð ríki heims muni láta sig það varða ef ákveðin ríki önnur láta viðgangast að þar séu framin þjóðarmorð og stríðsglæpir. Að slíkt verði ekki látið átölulaust.
Nú geta menn í sjálfu sér deilt um það hvernig réttlæti virkar í raun og hvernig mismunandi ríki standa þar gagnvart réttlætinu ...
Lesa meira
Vopnasali til “heppilegra” herstjóra i Afríku að undirlagi CIA og stoltur útgerðarstjóri eigin” öryggissveita” til heppilegra manndrápa m.a. í Sómalíu, gerðist Íslandsvinur 2019. Michele Ballarín er hörkukvendið, sú sem keypti flugfreyjubúninga WOW 2019 ( þó án innihalds) og hélt að flugfélag fylgdi með í tombóluverði. Boðaði þvi ný flugtök WOW um jól en graut skorti i skálina, vængi á fuglinn. Nýkveikt ást ...
Lesa meira
Samblanda af kynþátta-, trúarfordómum og fávisku er rót að illgjörnum árásum á fjögur egypsk flóttabörn og foreldra þeirra, sem hér hafa leyft sér að guða á glugga. Mannorðsníðingar dylgja um föður barnanna, stimpla hann sem líklegan “hryðjuverkamann” ! Fyrir það ámæli eiga ekki síst börn hans að líða. Maðurinn varð aktívisti þegar “ arabíska vorið” kom 2011 til Egyptalands, andóf gegn harðræði. Ekki fer allt að óskum og frá 2014 tók við ný harðstjórn, fræg fyrir ofsóknir gegn fyrri “ ólátabelgjum” Launmorð, pyntingar, aftökur, ólögmætar fangelsanir hafa snúið að þúsundum í Egyptalandi og gera það enn. Þá eru stimplar ekki sparaðir af ...
Lesa meira
... Efist einhver um að þetta sé raunverulega svona í pottinn búið, þá ætti sá hinn sami/sú hin sama að spyrja sig: hefur einhvern tíma verið kosið um þetta fyrirkomulag [að Ísland yrði hluti að innri orkumarkaði Evrópu]? Hefur verið haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um fyrirkomulagið? Kallar þjóðin sjálf eftir þessu fyrirkomulagi? Er hugtakið „lýðræði“ það fyrsta sem fólki kemur til hugar í þessu ferli öllu saman, eða frá því að fyrsti orkupakkinn var innleiddur? Eru stjórnmálamenn tilbúnir að leggja spilin á borðið í þessu máli fyrir næstu kosningar? [Þvert á flokka] ...
Lesa meira
Þýski hringurinn PCC SE, sérhannað útrásarfyrirtæki, gumar af yfirráðum og eign á 82 leppfyrirtækjum sínum í 18 ríkjum víðsvegar um heim, einu á Íslandi. Öll bera þau sjálfstæða ábyrgð, en eiga að skila eiganda arði. Íslenska “ útibú” PCC SE hlaut nafn, BakkiSilicon hf. Eigandinn hefur ráðskast með öll umsvif þess á Íslandi og erl.viðskipti þess. En sett alla ábyrgð á herðar BakkiSilcon hf, m.a. gífurlega skuldabyrði, sem nú er að sliga útibúið á Íslandi. Við bætast ...
Lesa meira
Í umræðu samtímans gætir eðlilega nokkurs misskilnings hvað snertir alþjóðlega dómstóla og lögsögu þeirra. Misskilningurinn er fullkomlega eðlilegur sökum þess að dómstólarnir eru margir, þeir eru langt frá fólki í daglegum veruleika lífsins og fjalla um mál sem mörgum eru fjarlæg. Í fyrsta lagi þarf að gera greinarmun á alþjóðlegum dómstólum annars vegar og svæðisbundnum (regional courts) dómstólum hins vegar [sbr. Mannréttindadómstól Evrópu]. Í öðru lagi þarf að hafa í huga hvaða ...
Lesa meira
Í dag er árásin á Tvíburaturnana 19 ára. Nýlega kom út (á ensku, af íslensku forlagi) ný bók um atburðina sem áttu sér stað þann 11. september 2001. Þetta er gríðarlega vel unnin og beinskeytt bók sem nær að fanga marga mikilvægustu þættina um þetta málefni. Bókin America´s Betrayal Confirmed. 9/11: Purpose, Cover-up and Impunity, er sterk bók um stórmál. Elías Davíðsson er baráttumaður mannréttinda, hefur einnig mjög fjallað um náttúruverndarmál og lýðræði en öðru fremur hefur hann sem sérsvið málefni hryðjuverka (undir fölsku flaggi sérstaklega) ...
Lesa meira
Fréttir RÚV 3. september greindu frá óundirbúnum fyrirspurnum til utanríkisráðherra á Alþingi. Þar kom fram: „Hneykslismál sem umlykur dönsku leyniþjónustuna snertir Íslendinga með beinum hætti sagði Smári McCarthy, þingmaður Pírata, og vísaði til þess að leyniþjónusta danska hersins veitti bandarísku leyniþjónustunni aðgang að ljósleiðurum ...
Lesa meira
... Í framhaldi af þessu datt mér í hug, hvort ekki væri hagkvæmara að bankinn lækkaði útlánavexti sína og hætti að greiða arð til Bjarna í ríkissjóð, því það myndi skila sér í auknum almennum viðskiptum og þar með tekjum af virðisaukaskatti, því ekki er prósentu talan þar svo lítil. Að minnsta kosti til muna hærri en ég hef kynnst í ...
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Allt Frá lesendum