Frjálsir pennar Janúar 2021
... Upprisa BakkiSilicon nú um páska er að líkum hafin yfir mannlegan, röklegan skilning. Birtist því sem undur. Rétt eins og ófarasagan frá upphafi rekstrar 2018 til stöðvunar 2020 er látin standa óútskýrð, eins og gildir um athæfi æðri máttar-valda. Fullvíst er að “Hönd Guðs” kemur að páskaupprisu BakkiSilicon sú sem líknsöm er oft þeim þurfandi ...
Lesa meira
Hún er sérkennileg umræðan um „afglæpavæðinguna“. Nú liggur fyrir breytingarfrumvarp[i] í heilbrigðisráðuneytinu um að ekki verði lengur refsivert að hafa í vörslu sinni svonefnda „neysluskammta“ eiturlyfja. Er frumvarpið þar komið í „samráðsgátt“ (sýndarmennskugátt). Málið er angi af öðru miklu stærra máli sem kalla má „undanhaldið mikla“ og lýsir sér í uppgjöf og undanhaldi á mörgum sviðum – allt í nafni „framfara“ auðvitað. Þetta er í stuttu máli geigvænleg þróun og alls ekki góð, öðru nær. Eftir stendur að fíkniefnaneysla er harmvaldur allra sem í henni lenda og aðstandenda þeirra ...
Lesa meira
... Andsvar hugsandi vinstrimanna er að hrista af sér doðann, endurmóta róttæka umbótastefnu í vinstriátt, losa sig undan hægriáráttu eigin forystu. Það er ekki bara þörf, það er brýn nauðsyn ef ekki á illa að fara.
Í stuttu máli: Endurreisn vinstri róttækni i sjónmálum er nauðsyn, sem binda þarf víðtækum umbóta- vilja í stjórnarháttum. Lágkúrustandi vinstriafla þarf að ljúka sem fyrst. ...
Lesa meira
Á þessu vefsvæði er réttilega bent á fáránleikann sem fylgir svokölluðum upprunaábyrgðum raforku. Þær eru hluti af blekkingastarfsemi og braski með rafmagn, þar sem „orkusóðar“ geta keypt sér syndakvittanir af hinum sem sóða minna (eða lítið). Með þessu móti er kaupandinn, neytandinn, látinn halda að hann kaupi „hreina raforku“ (græna). Neytandinn er með öðrum orðum blekktur. Eins og lesendur vita gekk Bretland endanlega úr Evrópusambandinu nú um áramótin. Á heimasíðu bresku lögfræðistofunnar Pinsent Masons er fjallað um skattahliðina á þessu svindl-fyrirkomulagi, í grein ...
Lesa meira
Þingið í Washington samþykkti að ákæra Donald Trump til embættismissis fyrir uppreisnaráróður („incitement of insurrection“). Alvarlegra fyrir hann var samt það bann sem hann fékk frá samskiptamiðlunum. Og það segir meiri sögu. Eftir upphlaupið við bandaríska þingið í Capitol er sitjandi Bandaríkjaforseti útilokaður frá öllum helstu samskiptamiðlum (og um leið stærstu fjölmiðlum) netheima, Facebook, Instagram, Twitter, Google ...
Lesa meira
Mörgum stjórnmálamönnum er tamt á tungu, eftir nýjustu atburði í Washington, að segja árás hafa verið gerða á „lýðræðið“. En það gleymist alltaf að láta fylgja með svarið við spurningunni: lýðræði hverra? Lýðræði valdaklíkunnar í Bandaríkjunum, lýðræði almennings? Forsetanefnur jafnt sem ráðherrar apa hver upp efir öðrum staðlaðar skoðanir um „árás á lýðræðið“ og látast stórhneykslaðir á því. Trúverðugleiki þessa fólks sem þannig talar er hins vegar enginn. Fólk sem lifir og hrærist í fílabeinsturnum er í órafjarlægð frá veruleika almennings, hvort heldur er í Bandaríkjunum eða á Íslandi. Í máli þess er ætíð holur hljómur ...
Lesa meira
Leiðinlegasti dagur ársins er tvímælalaust gamlársdagur. Ekki vegna þess að hann sé í sjálfu sér verri en aðrir dagar ársins heldur vegna hins að honum er spillt með óþarfa hávaða, drykkju og látum. Það verður ekki afsakað með því að „þetta sé síðasti dagur ársins“. Sá ósiður, má segja plagsiður, hefur mótast á Íslandi að kunna sér ekki hóf í neinu. Það sást vel árin fyrir hrunið mikla þar sem „allir ætluðu að verða ríkir“ og helst á einni nóttu. Enginn mátti vera minni maður en næsti maður, ekki skulda minna en næsti maður, ekki ferðast minna en næstir maður eða byggja minna hús en ...
Lesa meira
Tryggingastofnun ríkisins(TR) verði gert óheimilt að skerða húsnæðisbætur langveikra og fatlaðra örorkulífeyrisþega og eftirlaunaþega í EIGNARHÚSNÆÐI, ef þeir leigja út frá sér.
Litið verði á leigutekjur sem atvinnufrítekjur sem er um 107. þús. kr. á mánuði hjá öryrkjum en u.þ.b. 200. þús. kr. á mánuði á öldruðum. SAMBÆRILEGT ÞVÍ SEM GERT ER Á NORÐURLÖNDUM. Ath! Öryrkjar og aldraðir mega vinna "úti" án þess að lífeyrisbætur skerðist. - Hver er munurinn á sitthvoru? Nú er bráðavöntun á húsnæði, jafnt fyrir ...
Björk Magnúsar og Grétudóttir
Lesa meira
Í ellinni eitthvað að vafra
eins og honum ber
Sagður nú sjötíu og fjagra
sóma drengurinn hér.
Nú árin telur ansi mörg
að telja þau ei nenni
Æskann farin fyrir björg
orðinn gamalmenni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Tímarnir breytast og mennirnir með
í pólitík margan þar snúning hef séð
ei lygina segi
villast af vegi
og fullreynt virðist á langlundargeð.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Lesa meira
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Allt Frá lesendum