Frjálsir pennar Júní 2021
Áttatíu ár eru í dag liðin frá innrás Þýskalands í Sovétríkin, Óperasjón Barbarossa, mannskæðasta glæp veraldarsögunnar. Haldið er upp á afmælið með mikilli samræmdri heræfingu í Austur-Evrópu undir bandarískri stjórn, gegn Rússlandi. Æfingin sem nefnist DefenderEurope 2021 stendur nú yfir en er dreift á nokkrar vikur í 12 Austur-Evrópulöndum, á landi og sjó. Þátt taka 37 þúsund hermenn frá 27 löndum, þar á meðal frá hinum 14 nýju aðildarríkjum NATO í Austur-Evrópu. Öll fer æfingin fram í Austur-Evrópu, frá Eystrasalti til Svartahafs og Balkanskaga ...
Lesa meira
... Árás á sameignarviðhorf um almannavegi birtist í Vaðlaleiknum. Það högg reyndist klámhögg og verður því ekki sértjaldað vegabraski til framdráttar. Sú er ástæðan fyrir þöggun og yfirklóri, enda eru önnur plön um vegabrask í bígerð. Að auki er orðstýr skapara absúrd Vaðlaleiks þeim mikilsverðastur af öllu. Því er reynt að fela öll óhreinindin, allt kusk á hvítflibbum dustað af þeim sem með spunavald fara gagnvart almenningi. Eftir stendur þó ...
Lesa meira
Umræða um vindorkuver á Íslandi hefur varla farið framhjá nokkrum einasta manni undanfarna mánuði og ár. Fjölmiðlar hafa greint frá mjög glannalegum áformum um stóra vindorkugarða, oft í eigu erlendra aðila. Þetta er enn einn anginn af botnlausri græðgisvæðingu samfélagsins. Ætlunin er að fórna landsvæði, útsýni og fuglalífi á altari fáeinna braskara og jafnvel fjárglæframanna. Fjölmiðlar margir eru gagnrýnislausir, segja einungis frá áformunum en tengja þau ekkert við stærra samhengi. Eftir því sem áherslan eykst á „græna orkugjafa“ sjá braskararnir sér einfaldlega leik á borði að ...
Lesa meira
Tryggingastofnun ríkisins(TR) verði gert óheimilt að skerða húsnæðisbætur langveikra og fatlaðra örorkulífeyrisþega og eftirlaunaþega í EIGNARHÚSNÆÐI, ef þeir leigja út frá sér.
Litið verði á leigutekjur sem atvinnufrítekjur sem er um 107. þús. kr. á mánuði hjá öryrkjum en u.þ.b. 200. þús. kr. á mánuði á öldruðum. SAMBÆRILEGT ÞVÍ SEM GERT ER Á NORÐURLÖNDUM. Ath! Öryrkjar og aldraðir mega vinna "úti" án þess að lífeyrisbætur skerðist. - Hver er munurinn á sitthvoru? Nú er bráðavöntun á húsnæði, jafnt fyrir ...
Björk Magnúsar og Grétudóttir
Lesa meira
Í ellinni eitthvað að vafra
eins og honum ber
Sagður nú sjötíu og fjagra
sóma drengurinn hér.
Nú árin telur ansi mörg
að telja þau ei nenni
Æskann farin fyrir björg
orðinn gamalmenni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Tímarnir breytast og mennirnir með
í pólitík margan þar snúning hef séð
ei lygina segi
villast af vegi
og fullreynt virðist á langlundargeð.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Lesa meira
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Allt Frá lesendum