Beint á leiðarkerfi vefsins

Frjálsir pennar

25. September 2006

Rúnar Sveinbjörnsson: ÁBENDINGAR TIL LEYNIÞJÓNUSTU RÍKISINS

... Hann er búinn að hnoða saman ævintýrasögu til að skjóta stoðum undir leyniþjónustu Björns Bjarnasonar og eins til þess að sýna fram á að það hafi verið bæði eðlilegt og nauðsynlegt að stunda símhleranir forðum tíð. Allir sem kynnt hafa sér sögu verkalýðshreyfingarinnar og friðarbaráttu hér á landi vita hins vegar að margt sem Þór Whitehead hefur fram að færa til að auðvelda leynifæðinguna hans Björns er fært í stílinn. ... Hér eru nokkrar staðreyndir  sem ...

16. September 2006

Jón Bjarnason: ÞAÐ ÁTTI ALDREI AÐ EINKAVÆÐA LANDSÍMANN

...Svör fulltrúa bæði Landhelgisgæslu og Neyðarlínu voru þau að eftir einkavæðingu Símans væri öll viðskipti á markaðsgrunni. Viðskitavinir tækju ákveðnar línur á leigu. Bili þær þá er ekkert samband. Vilji viðskiptavinir auka öryggið verði þeir að kaupa sér  sérstaka tryggingu gagnvart slíkum bilunum og leigja aðgang að varaleiðum. Fram kom að slíkir aukamöguleikar kosturðu stórfé. Einkavæðing Símans og útboð á öryggisþáttum sjófarenda sem og annarra landsmanna hefur leitt til mun dýrari þjónustu en áður og minna öryggis. Meðan  Síminn með grunnetinu var í opinberri eigu var það þjónustan sem var veitt og Landsíminn nýtti alla sína sameiginlegu tækni til að veita  þá  bestu þjónustu sjálfkrafa, líka í bilanatilfellum.
Allt þetta...

13. September 2006

Helgi Guðmundsson skrifar: ÞÖGNIN ÆPIR

Það er kostulegt að hlusta á unga þingmenn, sem ættu að hafa áhuga á opinni umræðu og gagnsæju þjóðfélagi, fullyrða að þeir verði að þegja til að gæta viðskiptahagsmuna – ekki almennings heldur LV og ALCOA. Hér skal ekkert fullyrt um hvert verðið er, en hvers vegna má ekki upplýsa þjóðina – sem á auðlindina og orkufyrirtækið – um það? Bygging virkjunar og verksmiðju er á lokastigi. Hverju breytir þó að þjóðin fái þessar upplýsingar úr því sem komið er? Dettur einhverjum í hug að hætt verði við allt saman ef upp kemst um orkuverðið? Nei, auðvitað ekki. Hins vegar getur farið svo að þjóðinni ofbjóði, og það sem enn áhugaverðara er – evrópsk samkeppnisyfirvöld kunna að líta á verðið sem ólögmætan og samkeppnishamlandi styrk. Þögnin um orkuverðið æpir á kjósendur nokkrum mánuðum fyrir Alþingiskosningar. Að þessu sinni...

10. September 2006

Guðjón Jensson: VERÐUR LANDSVIRKJUN TEKIN UPP Í SKULD?

...Það kom mörgum á óvart, að ítalskt fyrirtæki bauðst skyndilega til að ráðast í mjög umdeilda framkvæmd á hálendi Íslands. Fyrirtæki þetta, Impregíló virðist hafa ratað í ýmsar fjárhagslegar ógöngur sem eru mjög athyglisverðar. Ekki hafði það riðið feitum hesti frá umdeildum framkvæmdum í Lesóthó í Suður Afiríku, m.a. vegna mútumála sem urðu mikill fréttamatur í þann tíð.
Nú má vera freistandi að leggja saman tvo og tvo: var þessu fyrirtæki sigað á hálendi Íslands til að rétta það af fjárhagslega? Við þurfum að fá einhvern sérfræðing í fjármálum að fara í þessa sauma. Mér sýnist á heimasíðu Impregíló...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

6. September 2010

AFTUR TIL MIÐALDA

Ögmundur, komdu með stuðning við frjálsar handfæra veiðar, þarna gætu orðið til þúsundir starfa, án þess að ríkið leggi til krónu, þetta gæti orðið næsta stóriðja. Það er búið að koma almenningi í sömu spor og á miðöldum, þú mátt ekki róa til fiskjar og fénýta aflann. Á meðan ræna örfáir útvaldir þjóðina lífsbjörginni með því að ryksuga fiskimiðin með verksmiðjuskipum, og skilja miðin eftir í rúst. Það eru 15.000 manneskjur atvinnulausar, þær mega ekki bjarga sér, þó til séu ...
aagnarsson

5. September 2010

ÆTLAR AÐ FYLGJAST MEÐ

Það er einkennilegt þegar menn af vinstri vængnum vilja absólút dæma íslenskan verkalýð til ævarandi þrældóms; 60 stunda vinnuviku og hárra vaxta. Láta svo LÍÚ reka sjávarútveginn þannig að gengisfellingar verði notaðar til að leiðrétta reksturinn þegar búið er að uppfæra bílaflota stjórnenda og húsakost á Íslandi og Florida. Svo hugsar maður til baka og man þá að sá til vinstri einkavæddi ræstinguna á spítölum borgarinnar eins og að drekka vatn. ...
Villi

5. September 2010

LÁTIÐ JÓN Í FRIÐI

Erindi fagnaðar hefur nú nýverið verið boðað hvers innihald ber með sér staðfestingu á styrk Ögmundar og Jóns Bjarnasonar. Ég geld engu síður varhug við að hróflað verði við Jóni um næstkomandi áramót í aðdraganda stofnunar atvinnuvegaráðuneytis. Þá er viðbúið Ögmundur minn að þú þurfir að endurstílisera línuna sem forveri þinn úr samstarfsflokknum hafði lagt, en þá á ég við vegtolla og stapp við lífeyrissjóðina. Ég held aukinheldur í vonina um afturköllun aðildarumsóknarinnar sem og breyttan prófíl á undirlægjuhætti gagnvart AGS. Nú ríður á Ögmundur minn kæri að þú nýtir það bakland og þann styrk sem að baki því býr og mundu að ...
Óskar K Guðmundsson fisksali

4. September 2010

LOKSINS

Loksins, loksins ...er kominn ráðherra löggæzlumála, sem ekki er úr Sjálfstæðisflokki. Ég óska þér góðs gengis með þann málaflokk sem og aðra sem þú nú stjórnar. En gumar og mær Sjálfstæðis sitja víða við stjórn DMR og stofnana þess. Ætli matið á "hæfi" þeirra margra hafi ekki verið ákveðið með flokksgæðingaþukli pótintáta og þægðarstuðlum frekar en raunverulegu hæfi. Gangi þér líka vel að eiga við þann skrautlega hóp.
kveðja,
Ver

4. September 2010

UM BIÐLAUN OG LÍFEYRISKJÖR

Fyrst hægt er að greiða tugmilljóna biðlaun til fyrrverandi ráðherra og að varnarmálafulltrúi, eða hvað það hét, fær full laun í fjóra mánuði eftir að starfið er lagt niður,væri þá ekki bara sanngjarnt að þeir lífeyrisþegar sem hafa kr. 150 þúsund á mánuði eftir skatta, fái smáhækkun á þá forsmán....
Edda Ögmundsdóttir

31. Ágúst 2010

STEINHISSA

Ég er steinhissa á þér Ögmundur, að þú skulir láta það viðgangast og samþykkja að leyndarhjúpur megi hvíla yfir framlögum til stjórnmálaflokka. Af hverju tekurðu ekki upp þá stefnu að banna alfarið framlög til flokkanna, nema árgjald einstaklinga og framlag ríkisins.
Sigurður Þórðarson

27. Ágúst 2010

LÝÐRÆÐIÐ LEYSIR ALLAN VANDA

Mér þótti gott að sjá viðtalið við þig á mbl.is þar sem þú sagðir afdráttarlaust að þú vildir að ríkisstjórnin lifði. Reyndar hef ég aldrei efast um að þú vildir það enda sagðir þú þig úr ríkisstjórninni fyrir tæpu ári  til að bjarga henni frá dauða. Svo einfalt var það. Það er hárrétt sem þú bentir á í viðtalinu á mbl.is að lausnin í ESB málinu er lýðræðið. Það er þjóðin sem kemur til með að ákveða málalyktir. Mér þótti gott hjá Jóni Bjarnasyni að benda á að samningaviðræðurnar gætu verið að þróast yfir í aðlögunarviðræður. Það má ekki gerast. Út úr þeim farvegi þarf málið að fara. Þetta þarf að gerast í ....
Grímur

26. Ágúst 2010

ÁLIT ÚT OG SUÐUR

Mig hefur lengi grunað að stjórnmálamenn og þeir sem gegna embættum á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekki er þetta vegna þess, held ég, að viðkomandi séu öll ólæs, þótt eitthvað kunni að skorta uppá næman skilningi fyrir samhengi hlutanna. Ég held menn hafi ekki nennt að lesa, eða þá að skýrslan hafi verið lesin á sama hátt og sagt var að ungir menn hafi lesið erlendar bókmenntir í skáldverkinu Gunnar og Kjartan eftir Véstein Lúðvíksson. Þetta segi ég i tilefni þess að viðskiptaráðherra lét gera enn eitt minnisblaðið, og nú um skyldu ríkisins til að standa undir innistæðutryggingum TIFs, eins og hann kallast í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Svo virðist sem augu nefndarmanna í efnahags- og viðskiptanefnd, sem þú situr í Ögmundur, hafi upplokist við lestur minnisblaðsins og efni þess hafi verið þér og ykkur framandi - að í því séu splúnkunýjar fréttir. Svo er ekki. Það einasta sem er óvenjulegt varðandi þetta minnisblað er, að ....
Hafsteinn

25. Ágúst 2010

HEFÐI ÁTT AÐ SPYRJA ÞJÓÐINA

Atlaga ríkisstjórnar að Jóni Bjarnasyni ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar er til varandi skammar og hann er ekki að fara með neitt fleipur. Þessi ríkisstjórn lagði úr höfn með bréfið til ESB vitandi það að 70% þjóðarinnar vill ekkert með það að gera. Þó svo að Alþingi hafi samþykkt að skoða málið hefði legið beinast við að bæta inn á kosningalistann við síðustu þjóðaratkvðagreiðslu, ertu þessu samþykkur eða ekki en því miður var það ekki gert. Því miður er núverandi verkstjórn á stjórnarheimilunu algjörlega óviðunandi og ummæli...
Þór Gunnlaugsson

25. Ágúst 2010

VELJUM RÉTT HUGTÖK

Við skulum deila og vera ósammála. En notum ekki orðið einelti af faglegum ástæðum. Það er ekkert til sem heitir "pólitískt einelti". Hitt er ljóst að margir hafa deilt á Jón Bjarnason.
Gísli Baldvinsson


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

13. Ágúst 2010

Björn Jónasson skrifar: OLNBOGARÝMI Í BRUSSEL

Fjölmargir menntamenn og stjórnmálamenn hér á landi hafa notið góðs af auknu Evrópusamstarfi eftir gerð EES-samningsins. Sá samningur hefur ýmsa kosti, einkum á sviði styrkja, vísindasamvinnu og einnig hafa fjölmargir Íslendingar fengið vinnu í Brussel við eftirlit ýmiskonar og skjalagerð. Nægir að benda á að hópur Íslendinga og Norðmanna samdi álit Eftirlitsnefndar ESA um að íslenskir skattgreiðendur bæru ábyrgð á Icesave skuldum Landsbankans hf. Ragnar Arnalds skrifaði ágæta bók um EES samninginn og fann honum ýmislegt til foráttu. Meðal annars það að hann ýtir undir hrávöruframleiðslu en hamlar fullvinnslu afurða á Íslandi. Engir tollar eru á óunnum fiski (þeas. óflökuðum) en tollur á unnum fiski. Þetta gildir um fleiri afurðir og hefur leitt til þess að vinna hefur flust úr landi og nægir að minna á fyrirtæki Sigurðar Ágústssonar sem fullvinnur afurðir í Hirsthals í Danmörku í stað Stykkishólms vegna þessa. Hægt er að færa rök fyrir því að...

4. Ágúst 2010

Baldur Andrésson skrifar: UM SKÚFFUR OG SKÖMM

...Forleikur að nýju átaki til einkavæðingar, sem í því tilviki er knúinn fram með engu minna ofstæki en fyrri daginn. Þessu síðara átaki er stýrt skipulega í anda AGS, eftir þekktri formúlu. Ríki og sveitarfélög eru sett í  greiðsluklemmu, bönnuð lántaka. Ríkinu er fyrirlagt, við kreppu- aðstæður að draga úr framkvæmdum og eignavexti, því er ætluð bæklun, að búa við baklás AGS. Við blasa ógnir vegna ofurskuldsetningar OR og Landsvirkjun er ekki á góðu róli. Innan skamms er fyrirséð varnarstríð fyrir samfélagseign á þeim stórfyrirtækjum báðum. Ríkinu er fyrirmunað að eignast ný spítalahús, hvatt til sölu á öðrum. Nýjum almannavegum skal fyrirkomið í einkaeigu og jafnvel þeim gömlu, ef endurbóta er þörf. Megnið af fjármálafyrirtækjum er nú þegar á leið í hendur fjölþjóða braskara...

8. Júlí 2010

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY

...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...  

Slóðin mín:

Frjálsir pennar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta