Beint á leiðarkerfi vefsins

Frjálsir pennar

10. Mars 2004

Þorleifur Óskarsson skrifar: Hann komst aldrei til kostnaðarvitundar

Verslunarráð Íslands hefur að undanförnu sýnt snarpa tilburði til vitundarvakningar meðal sjúklinga um allan kostnaðinn sem af þeim hlýst og samfélagið þarf að borga. Vakningin felst í því að rækta með sjúklingum hina göfugu kostnaðarvitund. Dugir þá lítt að mati ráðsins að upplýsa þá með einhverjum saklausum kostnaðaryfirlitum eða málamyndareikningum. Eina leiðin til að efla og virkja kostnaðarvitundina er að fólk finni fyrir útgjöldunum á eigin pyngju og það gerist ekki nema með stóraukinni þátttöku einstaklinganna í kostnaðinum.

Hvað kostar að fá í eyrun?

Orðið kostnaðarvitund er ekki gamalt í íslenskunni og líklega ekki nema rétt liðlega tvítugt. Þetta orð er ágætt til síns brúks og tiltölulega gegnsætt, rétt eins og eldri orð með vitundar-endingunni. Má þar m.a. nefna orðin meðvitund, undirmeðvitund, siðferðisvitund, þjóðernisvitund og stéttarvitund. Lengi fram eftir síðustu öld var mikið lagt upp úr stéttarvitund og þjóðernisvitund en í dag er kostnaðarvitundin mál málanna og segir þróunin sína sögu um þá hugmyndastrauma sem leika um heimsbyggðina á hverjum tíma.
Fyrst framan af var orðið kostnaðarvitund bundið við þröngan hóp hagspekúlanta en varð svo almenningseign í heilbrigðisráðherratíð jafnaðarmannsins Sighvats Björgvinssonar árin 1991-93 þegar sú ríkisstjórn sem hann sat í reyndi fyrst allra að rjúfa ríkjandi einingu um samábyrgð og jöfnuð í heilbrigðismálum þjóðarinnar. Svo rammt kvað að útbreiðslu orðsins að þegar foreldrar kvörtuðu undan auknum útgjöldum heimilanna vegna veikinda barna sinna voru meira að segja blessuð smábörnin með á nótunum og sögðu hughreystandi: “En mamma, þetta er nú bara hluti af þessu kostnaðarvitundardæmi,  sjúklingaspilinu hans Sighvats, og ég get alveg kaupt sýklapillurnar sem láta mér batna í eyrunum.”

Kostnaðarvitund og meðvitund

Síðan þetta gerðist hefur kostnaðarvitundarkrafan vofað yfir þjóðinni en nú hefur Verslunarráð Íslands tekið við kostnaðarkeflinu og reynir að spretta úr spori af sama krafti og hann Sighvatur forðum, sem að eigin sögn var blóðugur upp að öxlum við niðurskurð á sameiginlegum útgjöldum til heilbrigðiskerfisins og innleiðingu kostnaðarvitundarkerfisins. Verslunarráðið hefur með málflutningi sínum sýnt mikið meðvitundarleysi gagnvart samfélagslega rekinni heilbrigðisþjónustu og þar af leiðandi sýnt hreinræktaða óskammfeilni í garð sjúklinga. Og sama hugmyndafræði og Verslunarráðið veifar nú með látum blundar einnig innan stærstu stjórnmálaflokka landsins. Það er því engin spurning að sækja verður fram af krafti gegn sérhyggjunni og reyna með því að rækta meðvitund þessara öflugu minnihlutahópa um gildi sameiginlegs heilbrigðiskerfis þar sem eitt er látið yfir alla ganga, óháð efnahag. Þannig heilbrigðiskerfi vill meirihluti þjóðarinnar en hefur akkúrat engan áhuga á að hlusta á dánarfregnir í frjálshyggjustíl sem gætu hljóðað einhvern veginn á þessa leið:
“Jón Jónsson rithöfundur er látinn, aðeins 47 ára að aldri. Banamein hans var opið beinbrot og slæm ígerð sem fylgdi í kjölfarið. Jón var með fullri meðvitund til hinstu stundar en komst aldrei til kostnaðarvitundar og lést á heimili sínu aðfararnótt þriðjudags.”
Þorleifur Óskarsson


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

16. Maí 2013

BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN

... Teresa May innanríkisráðherra Breta hefur staðið í ströngu að koma dæmdum brottvísuðum öfgaklerki frá Bretlandi en hefur þó þar ríkisfang þar sem hann sé álíka hættulegur og Bin Laden. Þá bregðast dómarar við og dæma honum í vil slag í slag á öllum dómstigum að honum verði misþyrmt jafnvel þótt hann byggi í tjaldi á Gobi eyðimörkinni. Þetta hefur nú þegar kostað þá í málaferli yfir 600 milljónir punda fyrir utan að halda uppi fjölskyldu hans í luxusvillu í Mayfair hverfinu og ríflegum vasapeningum á meðan allt er skorið við nögl hjá heimamönnum. Frúin hefur gefið það út að ætli hæstiréttur landsins að ...
Þór Gunnlaugsson

16. Maí 2013

FRJÁLST FLÆÐI

...Örlítil hugvekja að allfögrum sunnudagsmorgni. Heyrði fyrir ekki all löngu að nú væri að opnast fyrir hið endanlega frjálsa flæði sem ekki hefur svo lítið verið dásamað í umæðu ESB unnenda. Bretar sem eru svo lánsamir að vera bara svona B- gaurar í ESB og hafa hafnað Schengen og Evru hafa gefið það sterkt út að þeir muni ekki flykkjast á Heathrow til að taka á móti þykkum hópum frá Búgaríu eða ég nefni nú ekkI Rúmenum sem einhverra hluta vegna virðist ekki meðal þeirra hjartfólgnustu heimsækjenda hins vestræna heims. Ekki mun okkar ...
Óskar K Guðmundsson fisksali

12. Maí 2013

ÝMIS SPJÓT

Jæja minn kæri nú er að standa sig sem aldrei fyrr, ýmis spjót eru aðstandandi en niðurstaða þeirra mála sem hæst bera þarf að vera í samræmi við þarfir okkar í samfélaginu.
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali

6. Maí 2013

GENGUR VONUM FRAMAR AÐ...

Okkur er sagt að vel gangi í viðræðum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknaflokksins um myndun ríkisstjórnar. Fundarstaðurinn var leynilegur. Það er táknrænt. En fjölmiðlar fundu út að fundað var í sumarbústað pabba annars þeirra Bjarna eða Sigmundar Davíðs við Þingvallavatn. Kannski líka táknrænt. Þeir standa einir í viðræðunum með ritara með sér. Táknrænt. Þetta er allt að...
Sunna Sara 

5. Maí 2013

NAUÐSYNLEGT AÐ RÆÐA OPNUM HUGA

Sæll Ögmundur og þakka vangaveltur þínar um úrslit kosninga. Ég sé ekki betur en þú bregðist við ákalli stuðningsmanna félagshyggjuflokka um að leiðtogarnir fari yfir stöðu mála og leiti skýringa á afhroðinu. Það er mikilvægt að það sé gert með opnum huga en ekki einvörðungu til að viðhalda því hugmyndakerfi sem kom mönnum í ógöngur til að byrja með. Ég vil þó bæta einu hráefni í uppskriftina sem ég tel vera uppistöðuna í þessu en þú virðist ekki sjá, e.t.v. vegna nálægðar þinnar við viðfangsefnið. Þar vísa ég til ...
H.P.

4. Maí 2013

Á AFTUR AÐ STELA ÍSLANDI?

Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara 

4. Maí 2013

ATHYGLISVERÐ MÁLSTOFA

...Þar sem mikið er um að vera í henni veröld og allir sem fást við stjórnmál eru önnum kafin, þá gefst ekki tími að njóta fróleiks og fræðslu. Málstofan sem ég vék að hér á síðu þinni í Landsbókasafni um Eirík bókavörð í Cambridge var ágæt. Þar sem eg tel efni hennar hafa verið áhugavert þá leyfi eg mér að senda þér niðurlagskaflann í erindi mínu sem flestir mættu skoða. Erindið fjallaði um ritskoðun sem Eiríkur var beittur og samskipti Eiríks og Skúla Thoroddsen. Las eg nýfundna heimild ...
Guðjón Jensson

4. Maí 2013

ÞAKKIR

Vildi bara lýsa yfir mikilli ánægju minni með gjörning þinn varðandi jarðakaup erlendra aðila á Íslandi. Takk fyrir.
Ísak Pétur Lárusson

2. Maí 2013

STÖÐVAÐU GRISJUN Í ÖSKJUHLÍÐ!

....Ef þú ert ábyrgur fyrir yfirvofandi grisjun í Öskjuhlíðinni þá verðuru að stöðva það. Þetta er út í hött! Geriru þér ekki grein fyrir mikilvægi skóga? Við ættum að eyða mun meiri orku og peningum í skógrækt. Við ættum að vera að kenna börnum samfélagsins að rækta. Eina gáfulega leiðin til framtíðar er ræktun skóga, matvara og annarra nytjaplantna. Börn þurfa að læra að rækta eigin mat. Við þurfum að sporna gegn veruleikafirringu barnanna okkar! Ekkert er mikilvægara en það sem vex, og þá á ég auðvitað ekki við ...
Konráð Bragason

2. Maí 2013

NÚ SKRÍÐA BRASKARA-ÖFLIN FRAM

Sæll Ögmundur, svona fór þetta þá, hvers vegna ríkisstjórnin lét ekki setja saman áróðurskver til að dreifa inn á hvert heimili í landinu, n.k. „Hvítri bók" hefði verið æskilegt. Leyfi ég mér að nefna gærdaginn „Svartasta dag íslenskrar stjórnmálasögu". Erfiðasta hlutverk nokkurrar ríkisstjórnar á Íslandi var sett undir mælistiku í þingkosningunum í gær. Furðulegt má það vera að tiltektarstarfið eftir frjálshyggjupartíð virðist einskis vera metið. Aldrei áður hefur nokkur ríkisstjórn á Íslandi orðið fyrir jafnmiklum erfiðleikum og ríkisstjórn Jóhönnu og fall hennar er mikið eftir óvægan áróður. Nú geta braskara- og spillingaröflin skriðið fram úr skúmaskotum sínum ...
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

3. Maí 2013

Helgi Guðmundsson skrifar: UM ORSÖK OG AFLEIÐINGU

...Las greiningu þína á kosningaúrslitunum á heimasíðunni, sem mér finnst um margt umhugsunarverð. Mörgu er ég sammála, enda þótt ég hafi ekki lagst í jafn djúpar pælingar og þú. Í öllu falli verður fróðlegt að sjá hverni SDG gengur að koma saman stjórn, og hvort hann velur að gera alvöru tilraun til vinstri. Mér fannst reyndar vanta hjá þér - og það skiptir miklu máli - að helmingur þjóðarinnar kaus ekki til hægri. Líklega meira en helmingur, því af gamalli reynslu veit ég að innan Framsóknar eru vinstri sinnuð öfl, sem í mörgum málum eru ...

25. Apríl 2013

EINAR ÁRNASON HAGFRÆÐINGUR: STÖÐVUM ÓSANNINDIN

Þannig jókst skattbyrði lægstu tekjuhópanna um 10 til 13,5% á þessum tíma en þáverandi stjórnvöld fullyrtu að þeir hefðu samt lækkað. Þessi aukna skattbyrði var vegna þess að skattleysismörk lækkuðu að raungildi þessi ár svo almenningur var að borga skatta af stærri hluta tekna sinna en áður... Sjálfstæðismennirnir sögðu ósatt allan tímann og Framsóknarmennirnir...

20. Apríl 2013

Einar Árnason skrifar: OPIÐ BRÉF TIL FORYSTU-MANNA FRAMSÓKNAR-FLOKKS OG SJÁLFSTÆÐIS-FLOKKS: SVAR ÓSKAST

...Hrunflokkarnir núverandi, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, lofa miklu? Hvar er innihaldið? Hvar er útfærslan? Er þetta ekki sama og með loforð helmingaskiptaflokkanna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, um einkavæðingu ríkisbankanna í dreifða eignaraðild sem vitað er að aldrei stóð til , þó því hafi verið logið að íslenskum almenningi í fjölda ára þ.e. um Landsbanka og KB banka. Þeir slógu það sjálfum sér eins og segir í ævisögu séra Árna Þórarinssonar um sýslumanninn og Sigurð svinakarl sem nöppuðu fé og jörðum frá Guðmundi dúllara. Í þessari helmingaskiptingu milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks greiddu þeir á víxl með lánsfé frá hinum ríkisbankanum.  Svik á víxl. Hvað skyldi forystumönnum...

Slóðin mín:

Frjálsir pennar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta