Frjálsir pennar
8. Júlí 2010
Ţorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
Ég fæ ekki betur séð en að með þessu sé meirihluti nefndarinnar að vinna gegn anda laganna og ráðherrann að sama skapi, til að þjóna erlendum auðmönnum á kostnað íslenskra almanahagsmuna. Þetta er gert í óþökk annars ríkisstjórnarflokksins en Vinstri græn hafa margoft og nú síðast á flokksráðsfundi fyrir þremur vikum ályktað gegn einkavæðingu HS orku. Þar segir meðal annars:
„Til að tryggja yfirráð almennings yfir orkufyrirtækjum og vinda ofan af kaupum Magma á HS-Orku er mikilvægt að hér verði sett lög sem fela í sér óskoruð yfirráð hins opinbera á orkufyrirtækjum. Flokksráðsfundur brýnir ráðherra og þingmenn VG að hraða gerð slíks frumvarps og hvetur jafnframt til þess að gripið sé til allra ráða þannig að HS-Orka komist aftur í almenningseigu í samræmi við fyrri samþykktir flokksráðs og annarra stofnana flokksins. Þar á meðal verða eignarnámsaðgerðir ekki útilokaðar."
Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins.
Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.:
„Nú telur [ráðherra]2) að tiltekin erlend fjárfesting ógni öryggi landsins eða gangi gegn allsherjarreglu, almannaöryggi eða almannaheilbrigði eða ef upp koma alvarlegir efnahagslegir, þjóðfélagslegir eða umhverfislegir erfiðleikar í sérstökum atvinnugreinum eða á sérstökum svæðum, sem líklegt er að verði viðvarandi, og getur hann þá stöðvað slíka fjárfestingu, enda kunngjöri hann ákvörðun sína innan átta vikna frá því að honum berst tilkynning um hlutaðeigandi fjárfestingu, sbr. 7. gr. Áður en slík ákvörðun er tekin skal ráðherra leita álits nefndar um erlenda fjárfestingu."
Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig komið er. Ríkisstjórn sem ekki grípur inn í þennan feril á afgerandi hátt þannig að HS orka komist aftur í almannaeigu er ekki að gæta almannahagsmuna.
Frá lesendum
13. Maí 2012
HEIMILI EĐA FOSS?
Sunna Sara
13. Maí 2012
HALLĆRISLEGUR HROKI
Jóel A.
11. Maí 2012
AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA
8. Maí 2012
TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU
Sveinn
8. Maí 2012
FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ
Gréta Adolfsdóttir
7. Maí 2012
MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ
Kristín Sigurðsson
7. Maí 2012
LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA
Andrés Adólfsson
7. Maí 2012
BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR
Torfi Stefánsson
7. Maí 2012
FJÖLMIĐLAR SKOĐI
Jóhannes Gr. Jónsson
7. Maí 2012
VIĐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRĆĐU
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.
Póstlisti
Frjálsir pennar
28. Apríl 2012
Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI
20. Apríl 2012
Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN
7. Apríl 2012
Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA
...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...












