Fara í efni
NEVROS: BARÁTTUANDI OG FÖGNUÐUR YFIR VORKOMUNNI

NEVROS: BARÁTTUANDI OG FÖGNUÐUR YFIR VORKOMUNNI

Í kvöld lauk ég nokkurra daga veru i Strassborg, þar sem Evrópuráðið hefur höfuðsetur – vel að merkja ekki Evrópusambandiö – með því að taka þátt í Nevroz hátíðahöldum Kúrda í miðborginni en á þessum tíma árs fagna þeir vorinu bæði í Kúrdistan og víðs vegar um heiminn. Nevros sameinar ...
Í ROJAVA

Í ROJAVA

Friðarstofnunin Friður og réttlæti, Peace and Justice, í Strasbourg birti í síðasta fréttabréfi sínu frásögn af ferð sex manna sendinefndar til Rojava, sjálfstjórnarhéraðs Kúrda í norð-austanverðu Sýrlandi. Ég hef áður greint frá för þessarar nefndar hér á síðunni en verkefni hennar var að afla gagna um stöðu mannréttindamála í Rojava það sem af er þessu ári ...

Heimsyfirráðastríð – og árangursrík vörn Írans

Þegar þeir Trump og Netanyahú sögðu Íran stríð á hendur sögðu þeir höfuðtilgang þess að fyrirbyggja kjarnorkuvopnavæðingu Írans. Önnur markmið voru a) að koma á valdaskiptum í landinu, með afhöfðunaraðferð og b) að eyða flugskeytaiðnaði landsins c) stöðva stuðning Írans við herskáa hópa eins og Hamas og Hizbolla. Allir vita að hinn nefndi ...

Eru vinstri menn að vakna?

Mikið er ég ánægð að sjá vinstri menn sýna merki þess að þeir séu að vakna til lífsins og ætli að beita sér gegn ESB aðild. Evrópusambandið er í þann veginn að renna saman við NATÓ og hefur aldrei verið ágengara í að koma markaðshyggjunni í öndvegi. Ég er löngu búin að segja skilið við VG en það gladdi mig að sjá að ...
ÍSLANDI UMRÆÐULAUST MARKAÐUR BÁS Í ALÞJÓÐAMÁLUM

ÍSLANDI UMRÆÐULAUST MARKAÐUR BÁS Í ALÞJÓÐAMÁLUM

Þær skuldbindingar sem ríkisstjórn Íslands er að undirgangast fyrir hönd þjóðarinnar eru afdrifaríkar. Reyndar afdrifaríkari en ég tel að fólk almennt geri sér grein fyrir. Í Evrópu er byrjað að krauma undir vegna vígvæðingaráfergju helstu forystumanna Evrópusambandsins. Það hlálega er að í þann mund sem ...
VINSTRIÐ AÐ REISA SIG GEGN ESB AÐILD

VINSTRIÐ AÐ REISA SIG GEGN ESB AÐILD

... Síðan hefur hver atburðurinn rekið annan, á ný var boðað til opins fundar á Akureyri á vegum Til róttækrar skoðunar og í kjölfarið varð til deild Til vinstri við ESB á Norð-austurlandi. Síðastliðinn sunnudag var það svo Til vinstri við ESB sem boðaði til opins fundar á Selfossi og í kjölfarið var stofnuð Suðurlandsdeild samtakanna ...
FULLT ÚT ÚR DYRUM Á SELFOSSI UM ESB OG LANDBÚNAÐ – GAMALKUNNAR YFIRLÝSINGAR UM TÍMALENGD

FULLT ÚT ÚR DYRUM Á SELFOSSI UM ESB OG LANDBÚNAÐ – GAMALKUNNAR YFIRLÝSINGAR UM TÍMALENGD

Í dag efndu samtökin Til vinstri við ESB til opins fundar á Selfossi. Að honum loknum var boðað til stofnfundar Suðurlandsdeildar Til vinstri við ESB. Enda þótt Til vinstri við ESB stæði að fyrri fundinum var hann opinn öllum og mátti sjá þar fólk úr öllu hinu pólitíska litrófi og víðs vegar að úr atvinnulífinu ... Frummælendur voru Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur, Þorsteinn Ólafsson dýralæknir og Þorsteinn Bergsson, rithöfundur, formaður Til vinstri við ESB ...
UMHVERFISSINNAR, HERNAÐARANDSTÆÐINGAR OG FÉLAG SKATTGREIÐENDA SVARI

UMHVERFISSINNAR, HERNAÐARANDSTÆÐINGAR OG FÉLAG SKATTGREIÐENDA SVARI

... Ríkisútvarpið vitnar í norskan herforingja, Steiro að nafni, sem « segist alla daga velta fyrir sér hvernig sigra megi í styrjöld. Aðalóvinurinn verði líklega Rússland og Steiro sendir þau skilaboð til Rússlandsforseta að NATÓ sé reiðubúið til átaka.» ...
STRÍÐSGLÆPUM Á GAZA MÓTMÆLT

STRÍÐSGLÆPUM Á GAZA MÓTMÆLT

... Gaza má ekki gleymast þótt ofbeldisöflin hafi tímabundið einnig snúið sér annað. Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir baráttufundi á morgun og er ástæða til þess að hvetja fólk til þess að mæta og sýna þannig hug sinn í verki. 
DAVÍÐS ODDSSONAR MINNST

DAVÍÐS ODDSSONAR MINNST

Það má eiginlega segja að ég hafi þegar minnst Davíðs Oddsonar sem nú er allur og til grafar borinn í dag. Það gerði ég í bók minni Rauða þræðinum sem út kom fyrir ekki svo ýkja löngu. Þar kemur Davíð talsvert við sögu enda áttum við oft á lífsleiðinni í samskiptum. Segja má að við höfum verið eins konar fjandvinir, harkalega ósammála um flest, alls ekki allt þó - og aldrei illt okkar á milli. Í Rauða þræðinum ræði ég um ...