Fara í efni

EES TIL ÓÞURFTAR

Frettablaðið
Frettablaðið

Birtist í Fréttablaðinu 02.03.08.
Um síðustu helgi voru forsíður tveggja íslenskra blaða, Morgunblaðsins og Fréttablaðsins undirlagðar kröfum um að Íslendingar gengju tafarlaust í Evrópusambandið. Í öðru blaðinu var vitnað í viðskiptamógúl og hinu talskonu banka. Kvöldið áður hafði framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, haft uppi svipaðan málflutning í ljósvakamiðlum og talsmaður fjármálastofnana sagði að íslenska ríkið væri hugsanlega skaðabótaskylt vegna þess að dómsaðili í Brüssel  hefði komist að þeirri niðurstöðu að Íbúðalánasjóður samræmdist ekki markaðsskilmálum á hinu Evrópska efnahagssvæði.
Meintur glæpur íslenska ríkisins er sá að setja á stofn sérstakan Íbúðlánasjóð fyrir alla landsmenn. Sjóðurinn er sjálfbær í þeim skilningi að hann nýtur ekki ríkisstyrkja. En vegna þess að bakhjarl hans er íslenska ríkið fær hann ódýrara lánsfé en ella. Af því njóta allir landsmenn góðs. Og sú staðreynd að hann byggir á íbúðaveðum á landinu öllu - bæði á svæðum þar sem veð eru „trygg" og einnig þar sem þau eru það síður - og vegna þess að allir tekjuhópar eiga þar aðild - þá verður niðurstaðan hagstæð fyrir heildina.  Þetta hefur bönkunum alltaf þótt ófært. Þeir vilja komast yfir „tryggu" veðin og láta þá skattborgarann  um „félagslegu" úrræðin. Þegar bankarnir fengu ekki sínu framgengt kærðu þeir til Brüssel og viti menn þar var skilningur á því að ríkið á Íslandi skekkti samkeppnisstöðu fjármálafyrirtækja!
Hvað ætlum við að ganga langt í því að láta aðild okkar að hinu Evrópska efnahagssvæði brjóta niður hér allt sem heitir samfélag?
Skyldi vera samhengi á milli markaðshyggjunnar sem er ríkjandi innan Evrópusambandsins  og áfergju hérlendra fjármálaafla að komast alla leið inn í Evrópusambandið?  Í mínum huga verða kröfur fjármálamanna að varnaðarorðum. Og hótanir frá Brüssel eiga að verða  okkur hvatning um að endurskoða tengsl okkar við Evrópusambandið. Það er löngu komið á daginn að EES samningurinn er íslensku samfélagi að mörgu leyti mjög skaðlegur. Nýjustu hótanir minna á það.
Ögmundur Jónasson, alþingismaður