Fara í efni

Á AÐ SVÍKJA Í HÚSNÆÐISMÁLUM?

FB logo
FB logo

Birtist í Fréttablaðinu 01.09.08.
Samfylkingin undirbýr nú undanhald í húsnæðismálum. Svik myndi einhver kalla það eftir allar heitstrengingarnar um að ekki verði hróflað við Íbúðalánasjóði. Bankarnir hafa sem kunnugt er ofsótt sjóðinn, kært hann til Brussel og leitað allra leiða til að koma honum fyrir kattarnef. Krafan hefur verið sú að Íbúðalánasjóður megi vera til en aðeins til að sinna „félagslegum úrræðum". Að öðru leyti verði sjóðnum meinað að veita lán með baktryggingu ríkisins. Nú þegar það hefur sýnt sig hve mikilvægur Íbúðalánasjóður hefur reynst almennum íbúðakaupendum er óskiljanlegt að félagsmálaráðherra skuli lýsa því yfir að látið verði undan kröfum fjármálafyrirtækja. Í frétt í Fréttablaðinu (29. ágúst) er haft eftir Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, að ekki sé sjálfgefið að kjör almennra lána muni versna við afnám ríkisábyrgðar! „Það þarf ekki að vera og ræðst af þeim fjármögnunarkjörum sem Íbúðalánasjóði bjóðast." Það er nefnilega það. „Það þarf ekki að gerast." Í þessum orðum felst augljóslega að þessar líkur eru fyrir hendi. Ef svo er hljóta menn að spyrja hvers vegna í ósköpunum eigi að fara út í þessar breytingar!
Við vitum allt um þetta brölt suður í Brussel. En er ekki kominn tími til að Íslendingar standi í fæturna og láti reyna á hversu langt upp á dekk handbendi gróðaaflanna í Brussel treysta sér gagnvart almannahag á Íslandi. Það yrði yfirgengilegur vesaldómur af hálfu flokks sem kennir sig við jafnaðarmennsku að láta undan þrýstingi fjármagnsafla í aðför þeirra að húnæðiskaupendum.
Sá vandi sem við stöndum frammi fyrir á Íslandi nú um stundir er að verulegu leyti til kominn fyrir tilverknað óábyrgs framferðis fjármálafyrirtækja. Einkavæðing alls fjármálakerfisins á einu bretti á sínum tíma reyndist varhugaverð og kom í bakið á þjóðinni. Nú skal verkið fullnustað hvað íbúðakaupendur snertir. Íbúðalánasjóður er sjálfbær og hagkvæmur fyrst og fremst vegna þess að allir eru þar inni. Í því felst ákveðin jöfnun. Nú eru skilaboðin þessi: Skattborgarinn hirði  „félagslegu úrræðin", - og vel að merkja, það þýða ný útgjöld fyrir skattgreiðendur -  en aðra ætla bankarnir sér sjálfir.
Ég er hræddur um að þetta krefjist nokkurrar skoðunar við á Alþingi áður en Samfylkingin lögfestir þessi fyrirhuguðu kosningasvik sín.
Ögmundur Jónasson, alþingismaður