Í BOÐI BSRB
Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi í Borgarfirði tókst með miklum
ágætum. Nær tveggja áratuga hefð er komin á þessar meningarhátíðar
í þessari stærstu orlofsbyggð bandalagsins en tilefnið er nú sem
fyrr opnun myndlistarsýningar sem stendur sumarlangt. Að þessu
sinni er það Ingiberg Magnússon sem sýnir verk
sín. Þóra Einarsdóttir, óperusöngkona, söng sig
inn í hjörtu allra viðstaddra við undirleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur. Þær voru klappaðar upp og fengu mikið lof.
Það gerði líka Einar Már Guðmundsson, rithöfundur
sem fór á kostum, mælti ljóð af munni fram, las úr verkum sínum, og
talaði við samkomugestina. Í næstu viku kemur út ný bók eftir Einar
Má sem heitir Hvítbók. Mér kæmi ekki á óvart að
flestir viðstaddra hafi hugsað til þess að ná í hana volga úr
prentsmiðjunni þegar hún kemur í bókahillurnar. Að lokinni dagskrá
bauð BSRB upp á veitingar sem voru listilega framreiddar af
Stefaníu Óttarsdóttur, sem nú hefur tekið við
veitingarekstrinum í Munaðarnesi. Hafi hún þökk fyrir sitt frábæra
framtak! Svo og allir sem lögðu hönd á plóg til þess að gera þessa
stund eftirminnilega!
Frábær flutningur. Þóra syngur við undirleik Önnu
Guðnýjar.
Einar Már sýndi allar sínar bestu hliðar og fangaði salinn á
svipstundu.
Myndlistarmaðurinn Ingiberg Magnússon sagði frá viðfangsefnum
sínum.
Listamennirnir ásamt undirrituðum.